logo

Haframjöl á húðina

19 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Ég er orðin hálfgerður kuklari síðan við skelltum Speglinum í loftið í haust sem leið, alveg satt. Því nú geri ég reglulega úttekt á úrvali af andlitsmöskum, baðolíum og alls kyns húðdóti á netinu. Þá meina ég það sem við getum gert sjálfar heima, það er hrikalega kósý og alveg í stíl við kreppuna. Koma svo stelpur, þessi er æði!
Maskinn hentar öllum húðgerðum og er brjálæðislega einfaldur að útbúa. Hann hreinsar og nærir...við vitum allar hvað það er frískandi að taka smá stund í svona dúllerí.

Þrjár mínútur í undibúning...

1 msk haframjöl, fíntsaxað
1 msk hrein jógúrt (lífræn ef þið viljið missa ykkur í náttúruleikanum)
nokkrir dropar af hunangi

Blanda saman jógúrt og haframjöli. Hita nokkra dropa af hunangi, það er nóg að hita skeið undir rennandi heitu vatni og setja svo hunangsdropana í skeiðina. 

Hræra svo hunanginu saman við blönduna og bera maskann á andlitið. Tíu rólegar einkamínútur (ekki vaska upp á meðan sko) og skola svo af með volgu vatni. Gott að hita að lokum þvottastykki og leggja yfir andlitið. 

Svo máttu bara bera á þig uppáhalds rakakremið og halda áfram að vera til.

Nema hvað nú ertu svo miklu ferskari...

steina@spegill.is
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur