Súkkulaðimús Stínu og Oprah
19 febrúar 2012 - Kristín Einarsdóttir


Langar til að deila með ykkur dásamlega einfaldri eftirréttauppskrift. Upphaflega fékk ég hana frá sálusystur minni Oprah Winfrey. Það besta við þessa uppskrift er hversu fljótleg og einföld hún er.
Ég er náttúrulega löngu búin að skipta út sykrinum og mjólkinni sem var í upphaflegu uppskriftinni yfir í stevia og möndlumjólk og semi sæta súkkulaðinu hennar Oprah skipti ég út fyrir lífrænt dökkt súkkulaði. En það skemmtilega við uppskriftina er að hver og einn getur gert hana með sínu nefi og verið fimm mínútur að því!! Geri aðrir betur.
En hér kemur uppskriftin:
2/3 bollar möndlumjólk eða hrísmjólk
1 egg frá hamingjusamri hænu
7 dropar af Stevia (sweetleaf – fæst í Heilsuverslunum)
Sjávarsalt á hnífsoddi
1 bolli af lífrænu súkkulaði t.d. 70%
Líkjör ef vill
Svona förum við að:
Hitið mjólkina á miðlungshita, að suðu í potti.
Eggið og súkkulaðið sett í matvinnsluvél og steytt vel saman ásamt stevia, salti og líkjör ef vill.
Í mjórri bunu er heitri mjólkinni bætt út í og maukað áfram í u.þ.b. 1 mínútu eða þar til blandan er mjúk og súkkulaðið bráðnað.
Hellið í falleg glös á fæti, kristalsskálar eða annan elegant borðbúnað og setjið beint í kæliskápinn.
1 klst í kæliskápnum er nægileg til að súkkulaðimúsin sé orðin stirð og falleg.
Skreytið síðan með þeyttum rjóma/jurtarjóma, ís, kókosflögum, berjum, rauðum chili eða bara hverju sem ykkur dettur í hug.
Njótið vel, þið þurfið a.m.k. ekki að hafa samviskubit yfir að vera að borða einhverja óhollustu!
Höfundur: Kristín Einarsdóttir
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





