Ertu með flösu?
20 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Heimatilbúin úrræði til að berjast við flösu í hársverði henta hárinu þínu miklu betur en efnin sem notuð eru í sjampó og áburð ýmiskonar út úr búð og apóteki. Þessi meðferð hér er tvíhliða; fyrst notarðu hörfræ olíu í hárið og fylgir því eftir með eplasíder ediki, sem er bráðsnjallt gegn bakteríum.
Það að setja sykur í olíuna er afbragðsráð, sykurinn er góður sem skrúbbur og nuddar burtu þurrar húðflögur. Það er ekki nauðsynlegt, þetta með sykurinn. En þess virði ef það hrynja niður á svörtu fötin þín húðflögur í bunkum.
Tíminn sem tekur að útbúa þetta er um klukkustund og 5 mínútur.
Hörfræ olía (það má nota ólífuolíu ef þú átt þessa ekki til...ekkert vesen hérna)
Hvítur sykur eða brúnn, alveg sama en betra í fínum kornum
Eplasíder edik (aftur...ekkert vesen, notaðu hvítt edik ef þetta er ekki til)
Vetnisperoxíð (ég ætla rétt að vona að apótekin bjóði upp á þetta)
Blandaðu saman msk eða tveimur af olíunni og tsk af sykri í skál. Nuddaðu í hársvörðinn.
Vefðu heitu, blautu handklæði um hárið og láttu standa í um 20 mínútur. Það má líka nota sturtuhettu.
Á meðan olían er að vinna, blandaðu 2 msk af edikiinu, 2 msk af vetnisperoxíði og 2 bollum af volgu vatni saman. Best er að setja þetta í spreybrúsa.
Farðu nú í sturtuna og þvoðu olíuna úr með smá sjampói. Skolaðu vel.
Skrúfaðu fyrir vatnið og spreyjaðu úr edik brúsanu í hárið, taktu það sundur í lögum svo þú náir að þekja sem mest. Passaðu augun!
Nuddaðu nú hársvörðinn með þessu.
Vefðu hárið aftur inn í heitt handklæði eða sturtuhettuna. Láttu blönduna verka frá 20 mínútum til klukkutíma.
Og skola vel.
Athugaðu að í báðum tilfellum (olíu og edik blöndu), þá máttu svo sem eyða minni tíma í að láta þetta standa í hárinu. Hitt virkar bara betur.
steina@spegill.is
Höfundur: Steinunn Fjóla Jónsdóttir
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





