logo

Marengo kjúklingur

20 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Marengo er nafnið á þessum kjúklingarétti sem ég rak nefið í um daginn. Og prófaði, en ekki hvað? Mér skilst að þessi klassíska uppskrift nái allt aftur til Napóleons en ég sel það nú ekki dýrara en ég keypti það. Hitt er annað, að hér er listagóð uppskrift á ferðinni og virkilega þess virði að bæta í kjúklingabunkann hjá þér.
Uppskriftin er fyrir 4

8 kjúklingabitar (eða bara bringur skornar í meðalstór stykki)
2 msk ólífuolía
300 g tómatmauk (veldu þitt uppáhalds)
200 ml hvítvín
2 msk þurrkuð krydd (ég sópaði saman grænu kryddi og það kom vel út)
40 g smjör
2 hvítlauksrif
50 svartar ólífur, steinlausar og niðurskornar
1 tsk sykur

Steiktu kjúklinginn í olíu í 4-5 mínútur, settu svo tómatinn, kryddið og vínið út á pönnuna. Láttu suðuna koma upp við meðalhita og leyfðu svo að malla við vægan í 30 mínútur.

Settu að lokum ólífurnar og sykurinn saman við.

Með þessu er gott að gera heimalagað hvítlauksbrauð; bræða smjör og saxa hvítlauk og bera á brauðsneiðar sem fara svo í ofninn. Og steiktir sveppir sóma sér líka vel með þessum rétti. 

Ef lítill kjúklingur er til, þá sé ég líka fyrir mér að setja gumsið á pastabeð, þannig verður máltíðin stærri.

steina@spegill.is
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur