logo

Brúnka í skammdeginu

21 febrúar 2012 - Petra Sif Jóhannsdóttir

Hver kannast ekki við hvíta, föla húð á þessum tíma ársins? Það eru margir sem vilja fríska upp á útlitið með brúnkusprautun eða brúnkukremi.
 
Hvað er það sem þarf að gera til þess að fá flotta og jafna brúnku ?
 
 • Í fyrsta lagi er það að skrúbba líkamann með góðum líkamsskrúbbi eða hanska. Oft er gott að nota skrúbbkremið áður en farið er inn í sturtuna til að fá betri árangur. Mælt er með 2-3svar í viku en ef þetta er nýjung fyrir þig þá er það bara að byrja og sérstaklega fyrir brúnkumeðferð.
 
Stelpur; passið bringuna á ykkur, ekki nudda of fast, bringan er oft viðkvæm og það ertir húðina aðeins að skrúbba hana.
 
• Notið djúphreinsi í andlitið. Allir eiga að nota djúphreinsi í andlitið einu sinni í viku til að örva flögnun húðarinnar og fá á hana ljóma. Mæli með að gera þetta 1-2 dögum fyrir brúnkumeðferð.
  
• Hver kannast ekki við að fá smá appelsínugular augabrúnir ?
Notið rakan eyrnapinna eftir brúnkumeðhöndlun og strjúkið léttilega yfir brúnirnar, ekki of fast, við viljum hafa eitthvað eftir af þeim.
 
• Það eru margir sem gleyma að þrífa á sér hendurnar eftir að hafa sett á sig brúnkukrem sjálfir... muna að þvo á sér hendurnar með sápu en nudda ekki of mikið handarbakið á sér því við viljum hafa brúnkuna þar líka. Svo er líka hægt að nota hanska og nudda smá kremi niður á handarbak.
  
• Svita roll-on geta framkallað grænan lit á brúnkunni. Svo endilega, ekki setja á ykkur svita roll-on fyrir brúnkumeðferð.
  
• Ilmvötn geta einnig myndað flekki, spreyja á fötin þann dag.
  
• Það allra mikilvægasta er að hafa heilbrigða og góða næringu í húðinni. Berið á ykkur gott body lotion eftir sturtu og komið í veg fyrir að húðin verði þurr bæði fyrir og eftir brúnkumeðferð.
  
• Til að fá smá ljóma í húðina er einnig hægt að blanda brúnkukremi við andlitskremið ykkar eða body lotion.
  
• Gott er að fara í stór og víð föt sem þrengja ekki að húðinni a.m.k 12 tímum eftir brúnkumeðferð.

 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur