Gimsteinn úr skríni
21 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Hún er uppfull af ábyrgð og skipulögð í skólanum. Skapstirð ef eitthvað passar ekki saman, á stundum engin föt. Hún fer alls ekki út með hvernig tösku sem er, hatar oft á sér hárið...samt er það viðráðanlegra en allra annarra í kringum hana. Toppurinn nær niður í augu, hann má ekki klippa of stutt. Þá er lífið ónýtt. Já, hún er oft á tíðum dramadrottning. Hún er drottningin mín.
Hún er fædd í miðjunni, sem er oft á tíðum ansi snúið. Hún á yngri systur og eldri systur. Af og til óþolandi báðar tvær. Og hún er öðruvísi. Alveg sérstakt eintak, sem á sinn stað, bara veit ekki alltaf alveg hvar. Ekki yngst, ekki elst...hún bara er. Stelpan hennar mömmu.
Hún er stúlkan sem grætur ef hún er lasin, því hún missir af skólanum. Hún vill ekki missa af matnum, ekki borða ein. Hún vill fjölskyldu, en stundum engan nema mömmu. Og þrjá kossa góða nótt, eitt faðmlag...leggstu hjá mér smástund. Mamma, ég get ekki sofnað, má ég segja þér svolítið.
Hún hugsar vel um litlu systur, gætir hennar úti við. Fær yfirþyrmandi áhyggjur ef hún veit ekki vel hvar hún er...má ekki missa þetta litla skott þrátt fyrir allt. Frekjudósina okkar.
Hún pirrar og stríðir, klípur og meiðir...ef sá er gállinn á henni. Milli systranna er svona samband. Haltu mér, slepptu mér. Ég elska að elska þig og elska að hata þig. Farðu frá þú pirrar mig, komdu nær og kysstu mig. Skammt stórra högga á milli.
Hún er ein í hópi þriggja, ég á þær allar alveg eins.
Henni finnst ýmislegt um mömmuna, hér eru engin leyndarmál. Kann alla brandarana; stundirnar sem mamma fór á kostum og var hallærisleg. Sumt ekki birtingarhæft, en efni í ótal hlátursköst. Mamma, komum að hlæja...manstu þegar...?
Hún raðar í hillurnar sínar, felur eitt og annað fyrir fingralöngum. Skrifar í dagbók á kvöldin og les fyrir svefninn. Hún er lík mér um margt. Segist fara í ævilanga fýlu, ef ég einhvern tíma gifti mig aftur. Öðrum en pabbanum. Þú ert betri ein bara mamma. Ha? Er það ekki?
Hún er stelpan með ljósa hárið sem í sundi sker sig úr. Dásamlega falleg og var einu sinni drottning á sumarhátíð. Þessi stelpa ætlar ekki í sund í sumar...því einhvern tíma sagði einhver að þegar hún kæmi úr kafi, væri eins og hún væri sköllótt.
Hér er unnið hörðum höndum að því að troða þessi ummæli í svörðinn. Við höfum nokkra mánuði, reyndar eitt tromp á hendi; hún elskar vatnið. Hversu djúpt rista vanhugsaðar athugasemdir sem allir hafa gleymt nema sumir...þegar maður er að verða tólf?
steina@spegill.is
Höfundur: Steinunn Fjóla Jónsdóttir
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





