Heilsuboðorðin tíu
21 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Heilsan eins og allir vita er afar dýrmæt. Hér á eftir fara heilsuboðorðin tíu, samkvæmt Krabbameinsfélaginu.
1. Reykjum ekki og forðumst reyk frá öðrum. Notum hvorki nef- eða munntóbak.
2. Takmörkum neyslu áfengra drykkja.
3. Vörumst óhófleg sólböð.
4. Fylgjum leiðbeiningum um meðferð efna og efnasambanda, sem sum eru krabbameinsvaldandi.
5. Borðum mikið af grænmeti, ávöxtum og trefjaríku fæði.
6. Drögum úr fituneyslu og forðumst offitu.
7. Leitum lækna ef við finnum hnút eða þykkildi eða tökum eftir að fæðingarblettur stækkar, breytir um lit eða verður að sári. Einnig ef við verðum vör við óeðlilegar blæðingar.
8. Leitum læknis ef við fáum þrálátan hósta, hæsi eða meltingartruflanir eða léttumst að tilefnislausu.
9. Förum reglulega í leghálsskoðun eftir tvítugt.
10. Skoðum brjóstin mánaðarlega og förum reglulega í brjóstamyndatöku eftir fertugt.
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





