logo

Er til í þrísom fyrir þig -elskan

22 febrúar 2012

Reynslusaga
 
Hann var sennilega hálfnaður með flöskuna. Hress og kátur og við spjölluðum af ánægju. Ástin var að brenna mig að innan. Hafði aldrei hitt svona gáskafullan náunga. Það var ekkert normalt við okkar samband. Það var sérstakt. Hann var sérstakur og lét mér líða eins og ég væri sérstök líka.
 
Heyrðu ástin mín, fyrir þig væri ég til í að fá annan mann í kynlífið með okkur. Af því að ég elska þig svo mikið. En hann þyrfti að vera útlenskur.
 
Ég kipptist til í sófanum. Horfði á hann og var ekki alveg að trúa því sem ég heyrði. Tók mig saman í andlitinu og stundi upp: Nei – veistu, það er ekki það sem ég vil.
 
Sat þögul um stund og hlustaði á tónlistina. Það komu ótal spurningar fram í huga mér.
 
Hefur þú? Ég var hikandi. Hefur þú prófað svona að vera með tveim konum?
 
Hann brosti og hellti aftur í glasið.
 
Já, einu sinni þegar ég var erlendis þá var ég með tveim skvísum. Þær voru hórur. Útlenskar. Bara svona fantasía sem mig langaði til að prófa.
 
Fallega rómantíska stundin sem ég hafði lifað mig inn í fyrir tæpum hálfum tíma var eiginlega ekki rómantísk lengur. Þrátt fyrir alla mína ást á þessum manni. Ég var einhvern veginn tætt að innan og leið ekki beint vel. Vissi eiginlega ekki hvað ég ætti að segja næst. Átti ég að spyrja nánar um þetta eða átti ég að láta þetta eiga sig. Var þetta eðlilegt eða var þetta óeðlilegt. Hafði bara ekki hugmynd. Voru karlmenn virkilega þannig að þeir framfylgdu svona draumórum. Svona góðir menn sem vildu konu og börn. Ég hreinlega var ekki viss.
 
Var þetta gott? Spurði ég á endanum, frekar en að segja ekki neitt.
 
Veistu elskan, við skulum bara gleyma þessu. Ég man voða lítið eftir þessu, þetta voru bara hórur í Suður- Ameríku. Vertu ekki að spá í þetta meira, elskan. Ég var bara einn og einmana á einhverju flippi. Hey elskan – hvernig fílarðu þetta lag?
 
Hann var stokkinn upp til að setja nýja tónlist á, greinilega alveg að fíla þetta. Bætti rauðvíni í glasið og horfði spyrjandi á mig. Ég tók við flöskunni og fyllti á glasið mitt, brosti – en ekki frá hjartanu.
 
Þar var komin smá sprunga.
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur