Furðulegustu störf í heimi
22 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Ertu óánægð/ur í vinnunni? Ertu óánægð/ur með eitthvað annað? Punkturinn með þessu er, að oft er óánægjan í garð vinnustaðarins manns eigið hugarástand. Nema kannski eru allir vinnufélagarnir með tölu grútleiðinlegir. Skítalaun.
Sjaldnast held ég að það sé raunin. Ef þú hyggur á frekari frama, vertu þakklát/ur fyrir það sem þú átt og hefur nú. Starfið þitt.
Trúðu mér, margt verra en þín vinna. Hún er aðeins ein trappa á leið þinni upp á við. Ef það er það sem þú vilt. Ég trúi ekki öðru en að þitt sé ögn skárra en það sem kemur hér að neðan...
Hefur þú fundið lyktina af rotnuðu eggi? Hún er verri en vond. Raunin er að fólk starfar við að "lykta" ...og flokka frá þau rotnuðu. TAKK hetjur!

Já, það er reyndar fólk sem tínir orma að atvinnu...

Þessi dama virðist vera hæstánægð, en hún starfar sem kyndýrafræðingur...

Elsku karlinn, hvernig kom það til að þú fórst að starfa við að hjálpa fuglsungum að stunda kynmök? Og virðist bara býsna glaður með það....

Dúddinn starfar við að hreinsa HÁKARLA -búr að innan....spurning um rússneska rúllettu í staðinn?

Laust starf í boði: Vantar öflugan mann/konu til að hreinsa hræ af þjóðvegum landsins. Þetta hverfur víst ekki af sjálfu sér...

Það er raunverulegt fólk sem semur textana inn í fortune-cookies...spurning að sækja um hjá Góu? Páskar eftir korter, er það ekki?

Fjölmargir sóttu um stöðu sem afturganga. Fólk er í alvöru "obsessed" af fyrirbærinu...

Ertu ennþá óánægð/ur með starfið þitt?
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





