logo

Föndur fjósakonunnar

22 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Lára Björns er búsett á Fáskrúðsfirði og föndrar undir nafni: Föndur Fjósakonunnar. Ég rakst á hönnun hennar á Facebook og heillaðist. Hver og ein vara er persónuleg og engin nákvæmlega eins. 
 

Ég geri fermingarbækur, sérstaklega fyrir hver og einn. Hver bók er hugsuð til að varðveita minningar barnsins á þessum stóra degi í lífi þess. Gestir rita nöfn sín í bókina og hægt er að líma inn minningar, myndir og kort svo eitthvað sé nefnt, segir Lára.
Einnig geri ég fermingarkerti og vef um þau perluböndum og set kross á þau eins og meðfylgjandi myndir sýna.
 

Þess má geta að ég geri kort fyrir öll tækifæri, samúðarskreytingar, skírnarskreytingar, gestabækur, uppskirftarbækur og margt margt fleira.



Lára sendir vörurnar sínar út um allt land. Hvet ykkur til skoða fleiri vörur með því að smella hér.  Einnig er hægt að fá frekari upplýsingar í síma 6980407.

heida@spegill.is


 
Höfundur: Heiða Þórðar
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur