Skilningur
22 febrúar 2012 - Kristján Hreinsson

Nú hefjum við ljóðalestur á ný í Speglinum. Stund milli stríða handa þér. Skáldið er mætt með ljóð sitt um skilning. Njótið lestursins kæru lesendur.
SKILNINGUR
Ég hugsanir heitar
og hjartnæmar rita.
Ef ljóða þú leitar,
þá láttu mig vita.
Þá skal ég í skyndi
af skilningi vefa
þér alúð og yndi
og allt mun ég gefa.
Ef skrifin þú skilur
skjól mun það reynast
því ástúð og ylur
þar ættu að leynast.
Höfundur: Kristján Hreinsson
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





