Gríman 4. hluti
17 ágúst 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Ástlausir elskhugar
Konur sem eiga siðblinda elskhuga eru margar sammála um að þeir séu góðir elskhugar. En á sama tíma má sjá af lýsingum þessara kvenna að tilfinningar þeirra eru kaldar, falskar.
Siðblindir þurfa spennu í líf sitt. Þess vegna er líklegra en ekki að þeir hafi átt marga elskhuga, prófað margar stellingar og notið ásta á ólíklegustu stöðum. Oft finnst venjulegum konum þetta spennandi og á „sjarmastiginu“ er hinn siðblindi oftast mikið fyrir kynlíf. Það er spennandi á þeim tíma. Annað hvort er hann að ná þér í gildruna og festa stjórnsemina í sessi, eða halda framhjá annarri konu.
Svona spenna getur heillað marga. Að eiga elskhuga sem getur ekki hætt að koma við þig eða sýna þér ástaratlot hvar sem þið eruð stödd, jafnvel í fjölmenni. Siðblindir eru þekktir fyrir að drekkja fórnarlömbum sínum í ástleitni og athygli. Jafnvel gjöfum og auðvitað því að þau séu sérstök – nei, einstök.
En þetta mun fórnarlambið fá að borga til baka – big time.
Á endanum mun hinn siðblindi stjórna hugsunum þess, tilfinningum og kynlífi. Það byrjar hægt og rólega, en endar oft á því að fá fórnarlambið til að taka þátt í kynlífsathöfnum sem því finnst óþægilegt. En það er ýtt áfram þar til fórnarlambið er eins og leikbrúða í höndum hans. Margar átta sig á endanum og sleppa, en því miður eru ekki allar svo heppnar.
Allt snýst þetta um að stjórna fórnarlambinu. Því er sagt hvernig það á að klæðast, hvað það á að segja. Margir siðblindir einstaklingar eru mjög ofbeldisfullir í sambandi sínu og bókstaflega nauðga „sinni heittelskuðu“. Þannig finna þeir valdið yfir henni.
Þeir sem beita ofbeldi í kynlífinu þurfa alltaf að finna sjúklegri leiðir og harðara, meiðandi kynlíf. Fórnarlambið er orðið kynlífsleikfangið þeirra. Það er engin ástríða, engin ást. Jafnvel ekki mannlegt.
En auðvitað geta þeir siðblindu falsað ást í ástarleikjum sínum. Allavega í byrjun. En á endanum nenna þeir því ekki lengur. Eftir sjarmastigið er enginn nánd í kynlífinu.
Þeir sem ekki notast við ofbeldisfullt kynlíf, nenna ekki að stunda það lengur með viðkomandi. Þeir fá ekkert út úr því. Spennan er horfin og þeir eru tilbúnir til að endurnýja bólfélaga.
Sumir þeirra vilja konur sem eru reiðubúnar til að gera hvað sem er, hvenær sem er og hvar sem er. Þeir sækja fyrirmyndir í klámfengið efni og vilja upplifa fantasíurnar. Vilji fórnarlambið fallegt kynlíf sem byggir á ást, verður því hegnt á einhvern hátt. Hvort sem það er með framhjáhaldi, algeru kynlífsleysi, skilnaði eða andlegu og/eða líkamlegu ofbeldi.
Sá siðblindi ræður. Á kynlífssviðinu færðu líka þína refsingu, hvernig sem hún svo er. Jafnvel þó svo þú lútir kröfum hans – það breytir engu. Spurningin er bara hvort hann gerir það opinskátt til að særa þig eða á bak við þig til að svíkja þig.
Auðvitað mun fórnarlambið á endanum átta sig á því að hún er ekki elskuð. Að hennar langanir og þarfir skipta hann engu máli. Hvaða kona sem er gæti komið í hennar stað hvað kynlíf varðar og margar hafa þegar gert það. Fórnarlambið er hvorki sérstakt né erfitt að finna aðra í hennar stað. Hún er kynferðislegt rusl fyrir honum. Langt frá því sem hún upplifði í upphafi.
Hún er orðin „eign“, hlutur sem hann getur notað að villd. Kynlífið er ekki veitt af neinni tilfinningu – hvað þá ást. Ef það á sér stað er það að hans atgervi og væntingum. Þeir siðblindu verða nefnilega fljótt leiðir á því að gera það sama, með þeirri sömu á sama stað.
Siðblindum einstaklingum er nákvæmlega sama um bólfélaga sína eða maka. Ef þeir veita þeim ánægju er það vegna þess að það eykur mátt þeirra sjálfra, eykur tök þeirra á þeim. Ekki vegna þess að þeir vilji veita annarri manneskju ánægju.
Siðblindir lifa í óraunverulegum heimi. Líka þegar kemur að kynlífi. Það er engin ást á ferðinni. Þeir taka ekki þátt í erfiðleikum þínum eða þjáningum. Þeim er sama um veikindi þín, sorg þína eða vonbrigði.
Þú upplifir þig sem eina og yfirgefna. Ef þeir hlusta á vandræði þín er það einungis til að nota það gegn þér eða gera þig háðari þeim. Ekki vegna þess að það skipti þá máli. Þvert á móti, þeir sjúga í sig veikleika þína til að geta notfært sér þá. Það er þeirra leikur, bæði á kynlífssviðinu og tilfinningasviðinu.
Hafir þú átt reynslu með siðblindum – berðu þá saman hvernig hann kom fram við þig í byrjun og svo seinna. Þú munt sjá stjórnun, kröfur, niðurlægingu og jafnvel ofbeldi.
Fyrst voru þeir alltaf yndislegir við þig. En þegar á sambandið leið voru þeir bara góðir við þig ef þeim vantaði eitthvað sem þú gast gefið þeim. Að reyna að finna þennan fyrsta yndisleika er álíka auðvelt og fyrir fisk að anda á þurru landi.
Ekki hægt.
Siðblindir einstaklingar geta ekki elskað og verða því ávallt elskhugar án ástar. Þú kannski áttar þig ekki á því strax en það verður sársaukafull staðreynd seinna.
Heimild: Claudia Moscovici, psychopathyawareness.
Höfundur: Lísa Björk Ingólfsdóttir
"It is a terrible thing to see and have no vision." H. Keller-
Leita





