Gríman 6. hluti
19 ágúst 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Að slíta sig lausa frá siðblindum
Margar konur sem eru í sambandi með siðblindum einstaklingi vita að þær eru að fást við mjög sjúkan einstakling. En þar sem sjálfsöryggið er brotið og skynjun á raunveruleikanum brengluð, þá halda þær samt áfram sambandinu.
Engin sleppur óskaddaður úr svona sambandi (Sandra Brown M.A.) og lengd sambandsins hefur þar ekkert að segja. Jafnvel mjög stutt sambönd geta verið mjög skaðleg. Á hinn bóginn geta konur sem hafa eytt allt að 20 árum með siðblindum einstaklingi, brotið sig lausar og fundið sig sterkari á eftir.
Skaðinn virðist aukast um leið og viðkomandi gerir sér grein fyrir að verið er að fást við sjúkan einstakling, þegar afneitunin er ekki lengur allsráðandi. En jafnvel þó mörgum árum hafi verið eytt í þetta sjúklega samband þá er hægt að sleppa.
Fórnarlambið hefur mögulega verið sterkur persónuleiki áður en hinn siðblindi hóf niðurbrotsferlið. Margir siðblindir einstaklingar kjósa nefnilega að finna sér sterk fórnarlömb. Menntaðar, sjálfsöruggar konur. Það er mun meiri áskorun í því fyrir þá að ná þeim undir vald sitt, fremur en veikgeðja konum sem eru auðveld fórnarlömb.
Þeir notfæra sér traust þeirra og beita sálrænum aðferðum. Þessar sjálfsöruggu konur hljóta að hafa veikleika og sá siðblindi er sérfræðingur í að finna þá veikleika.
Oft eiga þessar konur sameiginlegt að hafa ekki ákveðin mörk (e. boundaries) sem auðveldar þeim siðblinda að notfæra sér það og fara yfir mörkin. Til að endurheimta líf sitt verða fórnarlömbin að setja sér skýr mörk og átta sig á að þau eru ekki einungis viljalaus verkfæri. Gera sér grein fyrir að þau fóru með vilja í þetta samband, voru í þessu sambandi þrátt fyrir öll rauðu blikkandi ljósin. Tóku jafnvel aftur við honum eftir framhjáhald og lygar. Gerðu jafnvel hluti til að halda í hann sem þau hefðu aldrei gert. Vegna hans eru möguleiki á að vinir og ættingjar hafi verið særðir.
Til að öðlast skilning á því af hverju t.d. þú sem fórnarlamb valdir að lifa þessu sjálfeyðandi lífi þarftu að horfast í augu við veikleika þína og styrki. Í fyrstu varstu böðuð í athygli og hrósi en þú þarft ekki siðblindan einstakling til að taka eftir kostum þínum. Þú þarft ekki á gagnrýni hans að halda. Þú þarft ekki að gefa honum leyfi til að brjóta niður sjálfstraust þitt. Þú þarft ekki á fölskum hrósum hans að halda til að láta þér líða vel. Þú verður að vernda sjálfa þig og það er ekki bara sjálfsöryggið sem er í hættu.
Þú getur fundið aftur þinn innri styrk. Um leið og þú ákveður þín eigin mörk og lærir að segja NEI og meina það, þá ertu á réttri leið. Því í hvert skipti sem þú gerir eins og hann segir þér að gera, trúir lygunum hans þrátt fyrir eigin sannfæringu eða særir aðra hans vegna – þá vinnur sá siðblindi.
Nú er kominn tími til að nota alla þá neikvæðu reynslu sem þú hefur upplifað og setja skýr mörk. Hætta að leyfa honum að særa þig. Það eru meira að segja líkur á að hann vilji út úr sambandinu ef þú hættir að gefa honum svo mikið sem tommu af undirlátssemi. Hann verður að vera toppgaurinn. Hann verður að stjórna. Í raun bera hann nefnilega enga virðingu fyrir vilja þínum eða þeim kostum sem þú ert gædd.
Um leið og þú hefur náð tökum á því að virða mörk þín gagnvart honum er líklegt að þú munir styrkjast hægt og rólega.
Eðlilega hefur sambandið við siðblindan mann haft sínar afleiðingar – líklega hefurðu tapað einhverju af sjálfri þér. Þessi reynsla hefur gert þig veikari að einhverju leyti. En ef þú notfærir þér það til að þekkja takmörk þín og gildi þín – og verja þau, þá er ekki allt glatað. Mögulega hefurðu lært upp á nýtt að meta sjálfa þig og lært að þekkja hverjum þú hleypir inn í líf þitt og hverjum þú heldur fjarri þér.
Þú gætir endað uppi sem sterkari einstaklingur. Einstaklingur sem ekki mun láta stjórnast af öðrum framar.
En þetta er þitt val og þekkingin sem þú nú hefur er besta sjálfsvörnin. Upplýsingin skiptir máli. Það að þekkja einkenni siðblindu, þekkja til andlegs og líkamlegs ofbeldis, hefur bjargað milljónum frá heimilisofbeldi. Að deila upplýsingunum um siðblindu getur hjálpa milljónum til viðbótar.
Heimild: Claudia Moscovici, psychopathyawareness.
Pistlaröðinni Grímunni, var ætlað að upplýsa lesendur “lauslega” um helstu einkenni siðblindu og afleiðingar þess að tengjast slíkum einstaklingum. Allir pistlar Grímunnar byggja á heimildum og það er von að þeir geti borist sem víðast, því þekkingin getur bjargað ótal sálum frá þeirri hræðilegu lífsreynslu sem fylgir því að vera á einhvern hátt tengdur slíkum einstaklingi.
Spegill.is hefur sett fram sjálfstæða pistla um efnið og mun halda því áfram. Bæði í formi reynslusagna og annars efnis.
Þekking er máttur – máttur til sjálfsvarnar í þessu tilfelli.´
Pistlar og reynslusögur áður birt:
Höfundur: Lísa Björk Ingólfsdóttir
"It is a terrible thing to see and have no vision." H. Keller-
Leita





