logo

Eldhúsið

Marengo kjúklingur

20 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Marengo er nafnið á þessum kjúklingarétti sem ég rak nefið í um daginn. Og prófaði, en ekki hvað? Mér skilst að þessi klassíska uppskrift nái allt aftur til Napóleons en ég sel það nú ekki dýrara en ég keypti það. Hitt er annað, að hér er listagóð uppskrift á ferðinni og virkilega þess virði að bæta í kjúklingabunkann hjá þér.

Allt í steik? Holl sunnudagssteik

19 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Nú skulum við elda eitthvað hollt og gott fyrir fjölskylduna. Eldum blóðrauða steik, án þess að borða kjöt.
 
Allt í lagi, kannski ekki blóðrauða...lokaðu bara augunum...hugurinn er svo magnaður. Þessi uppskrift klikkar ekki, safarík og einstaklega bragðgóð.
 
 

Súkkulaðimús Stínu og Oprah

19 febrúar 2012 - Kristín Einarsdóttir

Langar til að deila með ykkur dásamlega einfaldri eftirréttauppskrift. Upphaflega fékk ég hana frá sálusystur minni Oprah Winfrey. Það besta við þessa uppskrift er hversu fljótleg og einföld hún er.

Stútfull súpa

18 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Ég tók mig til um daginn og byrjaði að tilraunast með linsubaunir, svo skelfing næringarríkar. Ég er viss um að samkrullið af chia, linsum og öllu öðru sem ég raða hér á borð...stútfyllir okkur stelpurnar af hollustu. Við ljómum að innan sem utan. Svo er klósettpappírinn með ilmefnum. Ilmandi sálir og afturendar skottast nú um í kringum mig. En hér er súpan...þetta var útúrdúr.

Uppskriftir án sykurs, hveitis og sterkju

18 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Það eru ýmsir sem forðast sykur, hveiti og sterkju af margs konar ástæðum. Auðvitað getur verið erfitt að gramsa eftir uppskriftum sem ekki innihalda einmitt þetta. Erla er okkur hér innan handar. Kíktu á þetta...

Bolla bolla bolla -uppskriftir

16 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Bolludagurinn með öllu sínu rjómaáti er handan við hornið. Mér finnst það æði, elskar bollur. Sitt sýnist hverjum, en flestir sem ég þekki eru hrifnastir af þessum klassísku vatnsdeigsbollum. Ég er ein af þeim.
 
Uppskriftirnar hér að neðan eru einfaldar í framkvæmd. Og vatnsdeigsbolludeigið, hefur aldrei klikkað.

Saltkjöt og baunir

16 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Jæja þá, nú er komið að því. Það styttist í saltkjötið og baunirnar. Þjóðlegt og gott, virkilega kraftmikið. Þetta þurfum við víkingarnir. Ekkert væl, sjóddu saltkjöt og baunir!

Hollar stangir

15 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Vantar ekki oft smá aukabita í nestisboxið? Eitthvað svona semi sætt en jafnframt saðsamt og bragðgott. Svona stangir eru oft í dýrari kantinum, því ekki að búa þær til sjálfur bara? Kokkalandsliðið á svona í öllum skúffum held ég. Heppnir þeir sem seilast í bita milli mála á þeim bænum. 
 

Chili sultan

12 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Já, ég nota greini í fyrirsögn, því þetta er eina chili sultan sem mér finnst bera nafn með rentu. Tær og sjóðandi heit snilld. Með ostabakkanum, eða skella yfir haug af rjómaosti og dýfa kexinu á bólakaf. Heitt heitt heitt stelpur. Æði!

Súpa sem þjónar æðri tilgangi

11 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Við erum öll á einhverjum tímapunkti að taka okkur á, hvort sem viðkemur bættara útliti, lífsstíl eða heilsu. Nóg er til af lausnum og hugmyndum. Hvort sem það er krem, pilla, aðgerð eða einfaldar og flóknar heilsusamar uppskriftir.

Geggjaður gulrótardrykkur

11 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Í þessum heilsusamlega orkudrykk eru það gulræturnar sem eru í aðalhlutverki.
 
En gulrætur eru þvagörvandi og hjálpa til við að losa við bjúg og blöðrubólgu. Gulrætur draga úr eituráhrifum og eru því hentugar gegn exemi og unglingabólum. Þær eru einnig sagðar geta haft góð áhrif á liða- og þvagsýrugigt.

Fiskbollur

10 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Já, ég er alltof löt við svona gamla og góða heimilisrétti. Ég er í öllu öðru svo vikum skiptir stundum...alltaf að prófa eitthvað nýtt endalaust. Stundum verður maður bara að fara á upphafsreitinn; back to the basics eins og það stendur. Og nú bregð ég fyrir mig kokkalandsliðinu, þeir eru góðir í svona ömmubollum úr fiski.

Hrein hollusta og himnesk

10 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Hér er um að ræða einstaklega góðan og einfaldan heilsudrykk. Sérstaklega góður fyrir þá sem eru með mjólkuróþol. 
 
Mjólkuróþol er kallað svo, þegar einstaklingur getur ekki melt mjólkursykur (laktósa). Þessa einstaklinga skortir nægilegt magn ensíma sem kallast laktasi, en það gegnir því hlutverki að brjóta niður mjólkursykurinn í meltingarvegi.

Linsubaunir á Spáni

Þegar ég hugsa um orðið á íslensku, þá kemur upp í huga mér linsubaunabuff...einhverra hluta vegna. Ég hef aldrei nokkurn tíma smakkað þetta blessaða buff. Man bara eftir einhverri hollustulesningu þar sem það kom fyrir. Já, lesning um hollustu þurfti það að vera. En það var á Íslandi. Þegar ég heyri linsubaunir í dag, þá tengist það ævafornri og fastri hefð í spænskum eldhúsum. Hér eru lentejas á spænskum borðum vikulega ef ekki oftar. Og hlustiði nú, það er ekkert buff á ferðinni. Bara bragðgóð hollusta í potti.

Vatnslosandi heilsudrykkur

8 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Sumir myndu nefna þennan orku- og heilsudrykk megrunardrykk, þar sem hann er afar vatnslosandi.
 
Ég er persónulega lítt gefin fyrir slíkar nafna-"bætur", en fullyrði að ef þú setur þennan drykk á matseðilinn, muntu losna við bjúg, fljótt og örugglega.  

Kjúklingur í engifer

Það er aldrei til nóg af hugmyndum um kjúkling. Endalaust hægt að tjútta við kauða, bæði á pönnu og í ofni. Það er ekki verra að hafa stundum bragðið pínu framandi...við eigum það til að festa okkur í viðjum vanans sumar. Ekki ég...nei, alls ekki ég. Datt þér það í hug? Hvaða vitleysa, hér er rjómafín hugmynd handa þér frá mér.
 

Engifer og epla -smoothie

7 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Ég elska engifer. Inni í kæli á ég alltaf til blöndu sem ég hef útbúið sjálf og er fáranlega auðveld í framkvæmd og samanstendur af sítrónu, engifer, hunangi og vatni. Þetta sýð ég allt saman og læt kólna vel áður en ég set í lofttæmdar umbúðir og geymi í kæli. Ég hef fyrir venju að drekka einn bolla á hverjum morgni af þessum drykk áður en ég geri nokkuð annað. Hér á eftir fer þó drykkur sem fullyrt er að sé algjör heilsubomba. Að auki fer drykkurinn einstaklega vel í maga. 

Bláberjasprengja

6 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Þessi drykkur er sannkölluð sprengja inn í daginn. Og ekki bara það, heldur einstaklega bragðgóður og afar mettandi. Og fallegur! 

Ýsa sem slær í gegn

5 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Uppskriftin sem ég birti hér að neðan er skuggalega góð.
 
Eða; uppskrift að ýsu sem slær í gegn hjá mínu liði. Ekki er verra að fiskur er næringarríkur, og að auki náttúrulegt "boost" fyrir heilann. 

Humarsúpa með grænmeti

Ég er aðdáandi kokkalandsliðsins eins og kunnugt er orðið, enda nauðsynlegt að elda stundum íslenskt hér suður frá. Til að halda í andann þið vitið. Þessi súpa er nú samt sem áður kannski ekki séríslenskt mataræði frá fyrri tíð. En góð er hún og einföld í matreiðslu. Svo má dúlla meira við hana ef fólki líst þannig á. Ég er svolítið svoleiðis. 
 
Ástin er gildra. Þegar hún birtist sjáum við aðeins ljósið, ekki skuggana.- Paulo Coelho

Ritstýrur