logo

Gestagangur

Er til í þrísom fyrir þig -elskan

22 febrúar 2012

Reynslusaga
 
Hann var sennilega hálfnaður með flöskuna. Hress og kátur og við spjölluðum af ánægju. Ástin var að brenna mig að innan. Hafði aldrei hitt svona gáskafullan náunga. Það var ekkert normalt við okkar samband. Það var sérstakt. Hann var sérstakur og lét mér líða eins og ég væri sérstök líka.
 

Skilningur

22 febrúar 2012 - Kristján Hreinsson

Nú hefjum við ljóðalestur á ný í Speglinum. Stund milli stríða handa þér. Skáldið er mætt með ljóð sitt um skilning. Njótið lestursins kæru lesendur.

Ráðist gegn mér með lygum

21 febrúar 2012

Reynslusaga

Ég vil byrja á að þakka mjög góða umfjöllun um siðblindu og önnur mál sem hvergi er tekið á. Þið eigið þakkir fyrir það. Lengi hélt ég að ég væri ein en núna veit ég betur.
 

Gríman 4. hluti

21 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Ástlausir elskhugar
 
Konur sem eiga siðblinda elskhuga eru margar sammála um að þeir séu góðir elskhugar. En á sama tíma má sjá af lýsingum þessara kvenna að tilfinningar þeirra eru kaldar, falskar.
 

Ógleymanleg helgarferð

20 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Þegar ég var unglingur, þó í eldri kantinum sem slíkur, tók ég nokkur uppreisnarár. Vildi frekar vinna en fara í framhaldsskóla, sem ég svo gerði aðeins seinna. Hins vegar sé ég ekkert eftir því. Maður gat grallarast með vinnufélögum.

Börnin okkar, kerfið og tálmanir

18 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Um daginn skrifaði ég pistil, Tálmun og tálmun, sem tekur lítillega á þessu afskaplega viðkvæma málefni sem varðar baráttu foreldra um börn sín eftir skilnað. Eftir að hafa heyrt meira af þessum málum finnst mér við hæfi að fjalla aðeins um kerfislegu hliðina.
 

Með fjársjóð í rúminu

17 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Kvöldið hafði verið óvenju erilsamt, en á góðan máta. Í fyrsta skipti í langan tíma horfði ég á fréttir með bros á vör. Það hafa heil ósköp dunið á okkar litlu þjóð undanfarið og mörg heimili blætt út. Önnur á leiðinni í sömu ógöngur. Stjórn í samkrulli við Alþjóða Gjaldeyrissjóð gert hvað hægt er til að herða sultarólarnar, hirða til sín eignir almennings í formi t.d. húsnæðis og skattlagt alla í kaf.

Gríman 3. hluti

16 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Samband með siðblindum

Þar sem siðblinda er ólæknanleg mun hinn siðblindi endurtaka ákveðið ferli í samböndum sínum aftur og aftur. Það skiptir engu máli hvaða kona á í hlut eða hversu lengi sambandið hefur varað.

Gríman 2. hluti

15 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Vaknaðu kona og horfðu á staðreyndir

Fræðimenn sem hafa kannað siðblindu hafa sett fram þá tilgátu að í raun sé um geðsjúkdóm að ræða. Mjög ákveðinn og ólæknandi sjúkdóm.

Góður Valentínusardagur

14 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Meðan turtildúfur eru að pískra um hvað eigi að gera merkilegt við þennan dag, þá sit ég alsæl með skottunni minni og dunda við heimilið.

Gríman 1. hluti

14 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Hinn ofurfullkomni sjarmur

Það er alveg ótrúlegt að lesa sér til um siðblinda (Psychopaths). Í raun eru þetta snillingar, en því miður snillingar sem eru öðrum mjög hættulegir. Miðað við þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á siðblindu erlendis er með ólíkindum hve lítið hefur verið fjallað um hana hér. 

Má bjóða þér stöðu sem leikfang?

13 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Hún sat á kaffihúsinu og sötraði kaffið sitt. Ekki með neinum hávaða, en naut þess að sitja þarna og hlusta á fuglana sem loksins voru farnir að syngja sín fegurstu ljóð. Sólin gægðist af og til á milli skýjanna og litaði tilveruna af yl og birtu. Við næsta borð sátu erlendir ferðamenn íklæddir lopapeysum og vatnsheldum yfirhöfnum. Innlendir kaffihúsagestir nutu vorblíðunnar í léttum efnislitlum jökkum.

Gullkorn

12 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Ég var að sýsla í eldhúsinu. Skottan mín var með vinkonu í heimsókn úr leikskólanum og það var glatt á hjalla. Svo gaman að ég var fullviss um að það tæki dágóðan tíma að koma öllum leikföngum haganlega fyrir aftur í barnaherberginu.

Er ég veðurguð?

11 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Það hefur ekki farið fram hjá neinum í henni Reykjavík og nágrenni að við höfum fengið alveg góðan slatta af snjó í vetur. Hef aldrei áður upplifað að þurfa að fara í klofstígvél, bara til að fara út með ruslið.

Tálmun og tálmun

10 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Þann 8. febrúar las ég afskaplega dapurlega grein um föður sem ekki hafði fengið að sjá börn sín svo mánuðum skipti. Samkvæmt því sem lesa mátti úr þessari frétt stóð ekkert í vegi fyrir eðlilegri umgengni nema reiði móðurinnar.

Helvítis karlinn!

9 febrúar 2012

Hann kemur af góðum ættum og er vel efnaður helvítis karlinn, hann átti konu og þau voru vinahjón hennar ömmu. Amma þessi yndislega persóna sem hataði „púffukarla“ eins og hún kallaði þá, átti einn slíkan vin.

Barnið hvað?

Foreldrar skilja. Það er staðreynd. Sumir hafa sín ágreiningsefni, en eðlilegir og vel þenkjandi foreldrar halda börnunum sínum utan við þetta ferli. Þroskað fólk. Enda báðu börnin ekki um þetta.

Að leiðarlokum -smásaga

8 febrúar 2012

Gamli maðurinn staldraði við á leið sinni heim að bæ og leit í kringum sig. Hann hafði búið þarna frá því að hann fæddist og þarna vildi hann deyja í sátt við sjálfan sig og náttúruna án afskipta pótentáta skriffinnskupúkanna í þorpinu sem vildu helst koma honum á elliheimilið á staðnum.

Börn sem alast upp hjá siðblindu foreldri

Það er alltaf erfitt að alast upp hjá siðblindri móður eða siðblindum föður. Helstu einkenni slíks uppeldis og afleiðingar þess eru af ýmsum toga.
 

Leiklist og blómabörn

Leiklist er tær tæknileg snilld. Þá meina ég tæknileg, því þetta er tækni til helvítis. Allt annað en maður hafði nokkurn tíma látið sér detta til hugar.
Ástin er gildra. Þegar hún birtist sjáum við aðeins ljósið, ekki skuggana.- Paulo Coelho

Ritstýrur