Gestaherbergið
Börn hafa líka rödd sem á að hlusta eftir
3 april 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Í samskiptum mínum við foreldra sem hafa átt í stríði vegna barna sinna hefur ýmislegt ljótt og leiðinlegt komið í ljós. Þetta eru sem betur fer undantekningartilfellin því flestir foreldrar virða börn sín og vinna saman eftir skilnað. Undantekningin er slæm og fer verst með börnin. Í næstu pistlum vona ég að fólk átti sig á þeim vandkvæðum sem barnaverndarvefndir eiga við að etja vegna laga sem ekki taka tillit til barna. Eins er ákvæðið „tálmun“ mjög umdeilt.
Samúð
3 april 2012 - Kristján Hreinsson

Það er komið að ljóðastund í Speglinum. Góðir gestir, skáldið yrkir um samúðina. Ekki úr vegi að gefa sér tíma í að lesa línurnar nú kortér í páskahátíðina. Verði ykkur að góðu.
Nokkur móðurleg ráð til foreldra
2 april 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Mig langar til að deila með ykkur nokkrum ráðum. Bæði vegna þess sem hafði áhrif á mínar tilfinningar sem barn og þess sem ég veit að hefur áhrif á mín börn.
Láttu barnið umfram allt finna að það er elskað. Hlustaðu á það og hlustaðu eftir þörfum þess, þær gætu verið aðrar en þínar eigin.
Minn eftirminnilegasti 1. apríl
2 april 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Ég var í menntaskóla og ný byrjuð að vinna á veitingastað sem þá hét Taj Mahal. Þetta var fyrsti dagurinn minn og ég hafði aldrei áður klætt mig í sari (indverskur búningur).
Í raun samanstendur þessi búningur af einhvers konar skyrtutoppi og afskaplega langri slæðu sem er vafið utan um sig og síðan yfir vinstri öxlina. Nema þar sem ég hafði jú aldrei klæðst svona búningi þá setti ég slæðuna yfir hægri öxlina.
Margt býr í þokunni
1 april 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Nei sko – ég er ekki að fara að segja ykkur sögu um álfa og tröll. Þó svo slíkar sögur hefðu verið fullkomlega viðeigandi núna í þokunni sem lá yfir borginni í dag.
Álfadrottningin dansar örugglega seiðandi salsa dans með Ólafi Liljurós. Shrek heldur villt boð í mýrinni með öllum ævintýrapersónunum eftir að tröllabörnin eru sofnuð og það eru kjöraðstæður fyrir E.T. að fara heim.
Margt býr í þokunni
31 mars 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Nei sko – ég er ekki að fara að segja ykkur sögu um álfa og tröll. Þó svo slíkar sögur hefðu verið fullkomlega viðeigandi núna í þokunni sem lá yfir borginni í dag.
Framhaldssagan 8. hluti
30 mars 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Tryggvi sat rólegur í sófanum og fór yfir pappírsbunkann sem ég hafði látið hann fá. Ég sat við hlið hans með fæturnar undir mér og sötraði rauðvínið. Lengi vel sagði hann ekki orð, bara blaðaði í gegnum pappírana.
Komaso! Stöndum saman
30 mars 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Þetta er ekki skemmtipistill en það er undir okkur komið sem þjóð hvort hann muni reynast gagnlegur. Sjáum til.
Það eru 200 fjölskyldur sem bíða eftir að fá hamarinn í höfuðið. Hamarinn sem tekur af þeim heimili sitt. Þessar fjölskyldur eiga það sameiginlegt að hafa leitað til Umboðsmanns skuldara vegna greiðsluerfiðleika í kjölfar bankahrunsins.
Fitness drottning á Arnold Classic
29 mars 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir
Mikið er um að vera í lífinu hjá henni Ernu Guðrúnu, enda ung og orkumikil dama. Við á Speglinum vildum eindregið fá að fylgjast með henni eftir viðtalið við hana sem við birtum fyrr á þessu ári. Stefnan var tekin á að fá viðtal við hana á ný að loknu ævintýri sem hún hélt í alla leið til Ameríku á Arnold Classic til þess að keppa í fitness.
Framhaldssagan 7. hluti
23 mars 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Ég hrökk upp af svefninum rennandi blaut af svita. Settist upp í rúminu og tók um höfuðið. Tryggvi svaf vært og bros lék um varir hans. Kvöldið hafði verið unaðslegt, engu líkt.
Framhaldssagan 6. hluti
20 mars 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Þegar ég var komin í Hvalfjarðargöngin reyndi ég að taka yfirvegaða ákvörðun. Ég myndi fara heim og reyna að ýta þessu öllu í burt frá mér. Seinna, þegar ég væri búin að jafna mig mundi ég ef til vill segja Tryggva alla söguna. En þrátt fyrir alla ástina milli okkar Tryggva þá var ég ekki viss um að hann mundi skilja það sem ég hafði upplifað undanfarna daga.
Að lifa með ofsakvíða
20 mars 2012

Speglinum barst bréf frá ungri konu sem glímir við ofsakvíða. Kvíði er vandamál sem hrjáir fleiri en þú getur ímyndað þér kæri lesandi. Og svo sannarlega erfitt vandamál sem vert er að fjalla um. Hér er bréfið...
Framhaldssagan 5. hluti
19 mars 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Ég harkaði af mér. Þetta var gömul ljósmynd og hafði ekkert með mig að gera. En hverjir voru þetta? Þegar ég leit upp aftur með tárvotum augum sá ég gömlu fallegu augun hennar Marínar hvíla á mér. Gamla röddin titraði milli þess sem hún reyndi að draga andann.
Framhaldssagan 4. hluti
17 mars 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Ég sat við hlið gömlu konunnar. Hún var andstutt og átti greinilega erfitt með að ná andanum á stundum. Ég virti hana fyrir mér þar sem hún lá þarna með lokuð augun. Reyndi að ímynda mér hvernig hún hefði litið út þegar hún var yngri. Svona fyrir utan þessi sérkennilegu bláu augu.
Framhaldssagan 3. hluti
16 mars 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Hér má sjá annan hluta og þaðan þann fyrsta.
Þorláksmessan var yndisleg. Ég vaknaði snemma, setti jólalögin í geislaspilarann og var búin að ná í afganginn af jólaskreytingunum og laga kaffi þegar Tryggvi kom grútsyfjaður fram. Hann var fljótur að sættast á að ná í drengina sína og uppfylla það loforð sem við höfðum gefið þeim. Strax fyrir hádegið var heimilið uppfullt af gleði og spenningi stráksanna, sem þyrluðust um allt hús til að ganga frá síðustu skreytingunum áður en við færum í bæinn til að klára jólagjafainnkaupin.
Hugur sem stanslaust er á flakki
16 mars 2012

Speglinum barst bréf frá ungri konu sem telur víst að hana hrjái það sem kallast ADD eða athyglisbrestur. Hún hefur alla tíð þurft að einbeita sér og hafa mikið fyrir því að skipuleggja sig. Hún hefur lesið sér til og beitir nú ýmsum ráðum til að ná á þessu tökum. Hér fáum við innsýn í hennar líf en í dag gengur henni mun betur að ráða við skipulagið.
Mömmur eru ekki allar eins
15 mars 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Reyndar eru engar tvær manneskjur alveg eins. Þess vegna er það fullkomlega eðlilegt að mömmur séu „allskonar“. Það er engin ein tegund af mömmu.
Framhaldssagan 2. hluti
15 mars 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Ég starði á snjáða bókina í höndum mér. Það var virkilega engin vitglóra í þessu. Tímasetningarnar pössuðu við aldur Marínar gömlu, en ég hafði aldrei heyrt nafn systur hennar eða systursonar. Eitthvað hafði hún verið yngri en Marín, það gat alveg stemmt. En konan frá kvöldinu áður var örugglega ekki meira en að nálgast fertugsaldurinn.
Framhaldssagan 1. hluti
13 mars 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Hríðin var orðin að blindbyl. Hefði mig grunað að Hvalfjarðargöngin væru lokuð er óvíst að ég hefði lagt af stað í bæinn. En ég hafði lofað Tryggva og börnunum að vera með þeim að undirbúa jólahátíðina. Ég vissi að þau biðu eftir mér.
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-






