Skömmustuskrefin...eða eru þau það?
18 maí 2012 - Anna Birgis

Öll höfum við heyrt frasann “the walk of shame” eða skömmustuskrefin eins og ég íslenskaði það. Ansi mörg okkar hafa lent í aðstöðu sem skömmustuskrefin eiga að koma manni úr og ég er næstum viss um að mikill meirihluti okkar hefur bara ekkert að skammast sín fyrir þegar kemur að einnar nætur gamni eða því að sofna annars staðar en heima hjá sér.
Lífið er lærdómur
10 maí 2012 - Anna Birgis

Lærir maður einhvern tímann af reynslunni eða er maður bara viss um að næsta skipti verði betra en öll hin?
Það sem karlmenn gera til að...
6 maí 2012 - Anna Birgis

...þurfa ekki að gera það aftur.
Til að komast undan því að vera beðnir aftur um að vaska upp þá gera karlmenn þetta:
Sulla allt út í eldhúsinu, vaska illa upp eða raða illa í uppþvottavélina. Brjóta disk eða fallegt glas sem var úr hinu fullkomna setti af 6 stk. Finna svo ekki sópinn eða fægiskófluna til að geta sópað upp eftir sig og eru sífellt að kalla:
Ég er kona
3 maí 2012 - Anna Birgis

Ég er líka móðir, dóttir, systir og já amma meira að segja. En ég er fyrst og fremst kona. Einhleyp, sjálfstæð og sakna einskis. Sit ekki heima og velti mér upp úr einmanaleika eða sjálfsvorkunn. Til hvers?
Yngismeyjar og peyjar
23 april 2012 - Anna Birgis

Hann elskar mig, hann elskar mig ekki, hann elskar mig ....og svo framvegis. Þetta gat maður þulið upp sitjandi í háu grasi, slítandi krónublöðin af baldursbrám. Ef útkoman var ekki sú sem maður sætti sig við þá var slitin upp ný og sama rullan þulin upp aftur.
Versace eins og draumur
5 mars 2012 - Anna Birgis
Innblástur hönnuða hjá Versace fyrir vor og sumar 2012 er hafinn. Ofsalega falleg föt og mynstrin eru æðisleg. Smáatriðin á hverri flík eru slík að ég læt fylgja með nærmyndir af fallegum smáatriðum í hönnuninni.
Just Cavalli
1 mars 2012 - Anna Birgis
Just Cavalli er undir merki frá Roberto Cavalli sjálfum. Ofsalega falleg föt og fylgihlutir.
Mig langar að sýna ykkur hvað Just Cavalli er að bjóða upp á fyrir sumarið 2012.
Donna Karan og tribal
29 febrúar 2012 - Anna Birgis
Já hún Donna Karan fór með sína línu í allt aðra átt en margir. Hún er með ansi fallega fylgihluti og kjóla og allt er þetta í tribal stíl.
Hvað er ást...
28 febrúar 2012 - Anna Birgis

What is love, söng Haddaway hérna um árið. Whats love got to do with it, söng Tina Turner, Foreigner söng I want to know what love is og svona gæti ég lengi haldið áfram.
Svart hvítt svart hvítt
27 febrúar 2012 - Anna Birgis
Það er þemað hjá Chanel í fylgihlutum. Ofsalega fallegar töskur og allar í svörtu og hvítu. Takið líka eftir eyrnalokkunum. Þeir minna mig á 60’s skartgripi. Og minna óneitanlega mikið á barmnæluna gömlu með konunni á sem allar frúr áttu hérna í denn.
Galla galla galla...
24 febrúar 2012 - Anna Birgis
...buxur, pils, jakkar, stuttbuxur, smekkbuxur og vesti fyrir sumarið.
Bréfið sem kom til Flórída
23 febrúar 2012 - Anna Birgis

Þegar ég var 17 ára fór ég til Flórída að passa börn. Voða gaman og mikill spenningur sem fylgdi því að vera að fara svona langt í burtu frá mömmu og pabba og systkinum og auðvitað öllum vinkonum og vinum.
Konukvöld Enska barsins og Bleiku slaufunnar
8 febrúar 2012 - Anna Birgis
Á morgun fimmtudaginn 9.febrúar 2012 verður haldið konukvöld á Enska Barnum við Austurstræti. Hefst kvöldið kl 20 stundvíslega.
Karnival -íslensk hönnun
24 janúar 2012 - Anna Birgis
Hún heitir Erla Stefánsdóttir og er konan á bakvið Karnival. Hún er 28 ára gömul, tveggja barna móðir.
Ása Jewellery
23 janúar 2012 - Anna Birgis
Fallegir íslenskir skartgripir hannaðir af Ásu.
Þegar ég var í menntaskóla, vissi ég að mig langaði í framhaldsnám sem tengdist handverki eða hönnun. Ég velti ýmsu fyrir mér og fékk upplýsingar frá háskólum, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum.
Skugga Donna
8 janúar 2012 - Anna Birgis
Skugga Donna er merkið hennar Huldu Drafnar Atladóttur. Hulda er alin upp á Selfossi en eftir stúdent fór hún að leita sér að einhverju að gera. Hún prófaði sagnfræði sem gekk ekki, svo hún fór í Iðnskólann í Reykjavík í klæðskurð til að reyna að læra að sauma. Það gekk vel en hún var óróleg þar eftir eitt ár og sótti um í Listaháskólanum þar sem hún kláraði BA í fatahönnun 2009.
Iceglass -Icelandic glass art
7 janúar 2012 - Anna Birgis

Þau Guðlaug og Lárus hófu rekstur á sameiginlegu verkstæði í kringum árið 2000 og það er upphafið að Iceglass.
Cool Design
29 desember 2011 - Anna Birgis
Sigrún Einars er snillingurinn á bak við Cool Design. Afar töff hönnun fyrir alla. Ég auðvitað, eins og alltaf, forvitnaðist um hana og hennar merki.
Litla Flugan
28 desember 2011 - Anna Birgis

Hún Jórunn Dóra er Litla Flugan. Einstaklega flott hönnun og svo eitthvað í mínum stíl. Öðruvísi, frumleg og ,,daring” ef ég má svo að orði komast.
Umemi
26 desember 2011 - Anna Birgis

Hún Ragnheiður Ösp er snilldar hönnuðurinn á bak við Umemi. Ég verð að viðurkenna að mér sjálfri finnst það sem hún er að hanna alveg magnað. Það er öðruvísi og sómar sér vel í hvaða sófa eða stól sem er.
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





