logo

Berglind Bjarna

Pistlahöfundur

Lesa um höfund

Keflavík og Keflvíkingar

11 mars 2012 - Berglind Bjarna

Þvottabala....ÞVOTTABALA!! Ég veit ekki með kynsystur mínar en ég persónulega hefði rotað maka minn hefði hann gefið mér bévítans þvottabala í jólagjöf. Vá hvað ég hefði tapað mér...urlast alveg hreint! Til í tveimur stærðum segir auglýsingin, ætli það hafi farið eftir barnafjölda þegar eiginmennirnir á þessum árum ákváðu hvaða stærð af þvottabala þeir ætluðu að gefa eiginkonum sínum í jólagjöf. Þessi auglýsing birtist 1958. Svei mér þá, sem betur fer hafa tímarnir breyst og mennirnir með.

Sviðinn mánudagur

22 febrúar 2012 - Berglind Bjarna

Einhverjum og þá aðallega nánum, mjög nánum vinum og fjölskyldu finnst ég ekki standa mig sem skyldi sem pistlahöfundur á Spegli. Það heyrist svo lítið í mér þessa dagana.
 
Málið er að ég er að lesa ÍSFÓLKIÐ!

Lífsleikni

4 febrúar 2012 - Berglind Bjarna

Lífsleikni heitir áfangi sem dóttir mín er í. Lífsleikni er skemmtilegur áfangi, ræðuhöld, persónulýsingar, börnin skrifa ævisögu sína og margt fleira áhugavert. Mín dóttir er þó í vandræðum með ævisöguna, hún er byrjuð á henni og segir að hún sé ansi skrautleg sem mér finnst frábært.

Almáttugur en sú mæða

16 janúar 2012 - Berglind Bjarna

Ég hef oft nefnt það í pistlum mínum að ég eigi tvö afsprengi. Unglingsstúlku og dreng sem á ekki langt í unglingsárin. Þessar elskur eru ótrúlega heppnar að eiga mig sem móður þar sem það lekur af mér þolinmæðin og ég er með eindæmum skilningsrík. Ég er fullfær um að setja mig í þeirra spor og ég er hoppandi umburðalynd.

Bölvun barnafjölskyldunnar

2 janúar 2012 - Berglind Bjarna

Flestir kannast við Ísfólkið, mín fjölskylda er ekki svo ólík þeim. Við erum þau útvöldu, á okkur hvílir bölvun. Bölvun sem ásækir okkur einu sinni á ári.

Brjálæðisleg jólagleði

16 desember 2011 - Berglind Bjarna

Ég fór einn sunnudag í des með börnin mín tvö í jólaleiðangur.Tilgangur ferðarinnar var jólagjafakaup og að eiga notalega fjölskyldustund, við öll þrjú saman.Fór það svo að jólaleiðangurinn yrði notalegur? NEI!

Ein allsber

6 desember 2011 - Berglind Bjarna

Ég spái lítið í draumum mínum þá sjaldan sem ég man eftir þeim þegar ég vakna á morgnana. Ég sef svo grjótfast að það mætti rigna eldi og brennisteini yfir mig án þess að ég myndi svo mikið sem rumska. Það er varla að ég sé vakandi þegar ég á að vera það. Ég labba um íbúðina svefndrukkin í góðan klukkutíma eftir að skrambans vekjarinn á símanum mínum hefur hent mér frammúr.

One size fits all

13 nóvember 2011 - Berglind Bjarna

Ég næ þessu ekki: One size fits all. Hvernig getur ein stærð passað öllum. Í einfeldni minni hélt ég að fólk væri mismunandi í vaxtarlagi, beinabyggingu og slíku, en NEI. Ekki samkvæmt sumum fataframleiðendum. One size fits all var það heillin.

Ilmurinn úr eldhúsinu

29 október 2011 - Berglind Bjarna

Er svo lokkandi, er svo lokkandi, ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi, jólatréð í stofu stendur...ókei ókei ég er hætt. Ég er vitaskuld ekki að syngja jólalög, ég sá mig knúna til þess að raula þetta samt þar sem ég eignaðist fjandmenn eftir síðasta pistil sem ég skrifaði þar sem ég fjallaði um hvað mér finnast jólin byrja of snemma.

Fari það grábölvað

23 október 2011 - Berglind Bjarna

Samræður milli mín og Dags sonar míns um daginn voru svohljóðandi:
 
Mamma,voru jólin til þegar þú varst lítil?
 
 

Blótkrukka

14 október 2011 - Berglind Bjarna

Sonur minn vildi endilega setja upp blótkrukku á heimilinu.
 
Finnst þér það ekki sniðugt mamma?
 
Ef ég, þú eða systir mín blótum þá þarf að borga í krukkuna.
 

Taggalicious

3 október 2011 - Berglind Bjarna

Ein brilljant vinkona mín vildi endilega að ég skráði mig á þessa síðu...taggalicious. Ég veit ekki alveg hvað hægt er að kalla þessa síðu annað en deitsíðu. Vinkonan reyndar heimtaði að ég færi þarna inn, hún var með hótanir við mig meira að segja; sagði að þetta væri hrikalega skemmtilegt, fullt af skemmtilegu fólki.

Ég held að hún sé mella

23 september 2011 - Berglind Bjarna

Þetta sagði hann Dagur minn þegar hann lýsti stúlku sem hann sá í strætó, hann var þess fullviss að stúlkan væri mella, enda í hælaskóm. Ég sagði honum að systir hans ætti hælaskó og ekki væri hún mella. Honum fannst það nú ekki sambærilegt því að systur manns væru ekki mellur.

Mömmur eiga ekki kærasta

14 september 2011 - Berglind Bjarna

Á mínu heimili virðist ég ekki flokkast undir mannveru, ég er bara mamma. Ég hef áreiðanlegar heimildir fyrir því að sama ástand sé á öðrum heimilum,til dæmis á Spáni.

Sorglegt

8 september 2011 - Berglind Bjarna

Mikið er ég döpur, ill og bandbrjáluð um leið yfir því hvernig farið er með eldra fólkið á klakanum!
 
 
Nýjasta nýtt er rukka ellilífeyrisþega á elliheimilum um matar- og þvottakostnað, jafnvel inntökugjald á elliheimilið og svo greiða þeir kostnað við iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun og þar fram eftir götunum.
 

Rómantík í aftursætinu

31 ágúst 2011 - Berglind Bjarna

Í aftursætinu á kagganum mínum liggur rauð rós í tætlum. Ég var ásamt öðrum að setja dót inn í bílinn minn þegar ég opna afturhurðina og við blasir tætta rósin og ég var spurð:
 
Nei hver gaf þér rós ? Bara brjáluð rómantík.
 

Rusl

28 ágúst 2011 - Berglind Bjarna

Mikið ofboðslega fer það fyrir brjóstið á mér (bæði brjóstin reyndar) ruslið á götum bæjarins. Ég segi bæjarins því að ég er að tala um Keflavík.....eða Reykjanesbæ. Ég er Keflvíkingur, borin og barnfædd. Ég hef hvergi annars staðar búið, ég er hardcore Keflavíkurpæja.

Pabbi -The best of

22 ágúst 2011 - Berglind Bjarna

„Mundu það Búbba mín að pabbi elskar þig mest“

Ég sit inni í stofu hjá mér með tölvuna í kjöltunni og hlusta á pabba spila á píanóið. Hann er á neðri hæðinni blessaður kallinn það er bara svo djöfulli hljóðbært á milli hæða að það er eins og hann sitji hérna við hliðina á mér.
 

Mrg, bra, milf, hammó, vandró...

21 ágúst 2011 - Berglind Bjarna

...glæsó, læk, kæró, öbbi, preggó!

Af hverju gerum við þetta? Er þetta sér íslenskt? Skammstafanir, styttingar, ó endingar, slettur og orðskrípi yfir höfuð er eitthvað sem ég spái reglulega í. Og þá er ég ekki að tala um stafsetningarvillur heldur algjöra afbökun orða.
 

Gleymd og týnd

20 ágúst 2011 - Berglind Bjarna

Ég er hún Berglind sem ekkert man og ég týnist óhugnanlega oft. Stundum finnst ég, stundum ekki. Það tekur á að vera ég, ofboðslega erfitt á köflum. Ég lifi í heimi sem enginn annar lifir í. Minn eiginn heimur sem ég sjaldan kíki út fyrir. Þegar ég geri það, þá er það til þess að ná í aðra sem ég býð svo í heimsókn í þennan heim. Gesturinn fær kaffi og með því en verður svo að fara því minn heim á ég og enginn annar.
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur