logo

Erla Björg Eyjólfsdóttir

Pistlahöfundur

Lesa um höfund

Smartshake

Þeir eru flottir og nauðsynlegir fyrir íþróttafólk á öllum aldri. Gott verð og góð vara í alla staði. Hægt að eiga marga fyrir mismunandi litadýrð sem verður fyrir valinu dag hvern. Blanda litum og hólfum er auðvelt og æðislegt fyrir augað.

Fjarþjálfun Valgeirs Gauta -þorir þú?

Það er alltaf gaman að fylgjast með einstaklingum dafna og vaxa. Fara á eftir því sem hjartað vill og þráir. Það er eitt að því sem er aðdáunarvert í fari Valgeirs Gauta. Líf hans snýst um það að rækta bæði líkama og sál. Ekki bara hjá sjálfum sér, heldur að aðstoða aðra við hið sama.

Gjafir fyrir litlar prinsessur

Ég á dásamlega frænku. Yndisleg bjalla sem verður sjö ára í þessum mánuði. Lítið frænkuskott sem á allt og mikið af öllu.

Fitness drottning á Arnold Classic

Mikið er um að vera í lífinu hjá henni Ernu Guðrúnu, enda ung og orkumikil dama. Við á Speglinum vildum eindregið fá að fylgjast með henni eftir viðtalið við hana sem við birtum fyrr á þessu ári. Stefnan var tekin á að fá viðtal við hana á ný að loknu ævintýri sem hún hélt í alla leið til Ameríku á Arnold Classic til þess að keppa í fitness.

Humanity armbönd hjá Kastaníu

Það er dásamlegt að fikra sig áfram á veraldarvefnum og finna fallega fylgihluti. Hvað þá þegar það er mikilvægur boðskapur á bakvið vöruna. Boðskapur sem er til þess ætlaður að gera heiminn sem við búum í að betri stað. Það vilja allir ganga með þessi armbönd hvort sem um er að ræða fræga persónu í Hollywood eða hjúkrunarfræðinema líkt og mig sjálfa. Maður leggur mikið til góðgerðarmála með því að fjárfesta í fáguðu armbandi. Ekki á hverjum degi sem er hægt að sameina góð kaup á fallegri vöru ásamt því að láta gott af sér leiða.

Kastanía

Flott, fáguð og kvenleg verslun sem flestar konur dýrka og dást að. Það er vart hægt að orða það á betri hátt. Verslun með fylgihluti sem tekið er eftir. Fylgihlutir sem eru einungis fáanlegir hjá þeim Bryndísi og Ólínu sem eiga og reka umrædda verslun af miklum krafti og endalausum áhuga.

Breki Design -skartgripir sem engan svíkja

29 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Við elskum íslenska framleiðslu á Speglinum okkar. Mörg viðtöl hafa verið birt við vel þekkta og lítt þekkta íslenska frumkvöðla. Fólk sem fer sínar eigin leiðir í því að koma sínu hugarfóstri á færi. Mikið eigum við af flottum hönnuðum, hvort sem um ræðir fatnað eða skart.

Uppskriftir án sykurs, hveitis og sterkju

18 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Það eru ýmsir sem forðast sykur, hveiti og sterkju af margs konar ástæðum. Auðvitað getur verið erfitt að gramsa eftir uppskriftum sem ekki innihalda einmitt þetta. Erla er okkur hér innan handar. Kíktu á þetta...

Reynslusaga matarfíkils

17 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Ég hitti hana við dásamlegar aðstæður þar sem hún ljómaði af ánægju. Glampinn í augunum og gleðin frá hjartanu. Þetta er kona sem ég hef þekkt svo árum skiptir. Alveg gjörólík sjálfri sér í dag þegar kemur að ytri hliðinni, en sami engill að innanverðu.

Súpa sem þjónar æðri tilgangi

11 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Við erum öll á einhverjum tímapunkti að taka okkur á, hvort sem viðkemur bættara útliti, lífsstíl eða heilsu. Nóg er til af lausnum og hugmyndum. Hvort sem það er krem, pilla, aðgerð eða einfaldar og flóknar heilsusamar uppskriftir.

Sexý og seiðandi safar

9 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Við elskum allar allt sem gerir útlit okkar betra. Hvort sem um ræðir dýrindis krem sem á að segja bless við appelsínuhúð og stinna okkur eða safar sem yngja okkur allar upp, bæði að innan sem að utan.

Sportstöðin Selfossi

6 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Ég hef lengi verið fastagestur og eilífðaráskrifandi hjá World Class. Ekki leiðinlegt það. Hins vegar flutti ég, ásamt eiginmanni og börnum út á land við upphaf árs. Mikill aðskilnaðarkvíði átti sér stað á milli mín og World Class. Ég sagði upp áskriftinni með miklum trega og nánast með tárin í augunum. Hvar ætti ég að komast í alla hreyfingarflóruna úti á landi sem gæti hugsanlega staðist samanburð við World Class?

Áræðni skilar ávallt sínu

5 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Það er mikilvægt að vera vakandi í lífinu fyrir árangri fólks í kringum sig. Það er bæði hvetjandi og oft á tíðum vakning fyrir marga, að efla naflaskoðunina sem maður stundar nokkrum sinnum í gegnum lífsleiðina.

Vatn er ekki bara vatn -fjölmargir möguleikar!

29 janúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Sú næring sem við þurfum mest að mínu mati er vatn. Þessi drykkur sem rennur áreynslulaust út um kranann heima hjá okkur öllum er lífsnauðsynlegt næringarefni. Við getum lifað mun lengur án matar en vatns. Það er staðreynd. Jafnvel þótt það sé ekki næringarefni sem slíkt.

High intensity interval training

28 janúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Þegar kemur að nýjungum er ég sú fyrsta til að forvitnast. Ég leita eftir upplýsingum úr öllum áttum og því fleiri áttir sem þær berast frá því betri vitneskju öðlast ég.

Chia fræ -uppskriftir

28 janúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Þegar ég skrifaði greinina um chia fræin grunaði mig ekki að undirtektirnar yrði jafn miklar og þær í raun urðu. Mikil ánægja fyrir pistlahöfund. Þín ánægja er mín ánægja. Takk.

Orkuskot á svipstundu

18 janúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Þegar börnin eru mörg og tíminn lítill gerist það oft að við gleymum að hugsa um að næra okkur sjálf á morgnana. Mistökin gerast varla stærri ef þú ert að huga að línunum. Taktu þér tak og búðu til tíma fyrir sjálfa þig. 

Laxaréttur sendur að ofan

17 janúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Mikið finnst mér gaman að grúska í uppskriftum og breyta þeim til hins betra. Hef sagt það áður og á eflaust  eftir að minnast á það í skrifum mínum. Ég rakst á frábæran laxarétt sem er meinhollur fyrir hug og hjarta. 

Fitnessdrottning

16 janúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Hún er ung og efnileg með allt lífið í höndum sér. Dama með bein í nefinu og óendalega áræðni í farteskinu. Áugaverður persónuleiki sem er þess virði að kynnast, skemmtilegt að sjá og fylgjast með hvert þessi dama stefnir.

Föstudagurinn þrettándi

13 janúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Hver segir svo að þessi dagur boði ógæfi? Það eru ekki orð að sönni í mínu tilfelli. Mér finnst engu að síður þessi dagur og dagsetning hræðilega hugguleg og hann boðar miklar breytingar hjá mér. Breytingar til hins betra.
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur