Váááá hollur hamborgari
25 febrúar 2012 - Ester Júlía

Ég er mikil matmanneskja og ég elska HOLLAN GÓÐAN mat! Og eins og flestum finnst mér gott að fá mér hamborgara öðru hvoru. En því miður er þessi týpíski hamborgari stútfullur af hitaeiningum. Og óhollustu.
Use it or loose it!
4 febrúar 2012 - Ester Júlía

Lyftu lóðum og láttu vöðvana hjálpa þér að „brenna“ óæskilegri fitu allan sólahringinn!
Elskađu kroppinn ţinn!
17 desember 2011 - Ester Júlía

Jólin eru hátíð þar sem fjölskyldan sameinast, nýtur þess að vera saman og borða góðan mat. Í ár eru litlu brandajól sem þýðir að jól og áramót lenda á helgi og því er jólafríið stutt. Frekar spælandi en þið getið huggað ykkur við það að jólafríið tekur aldeilis við sér á næsta ári.
Gleđileg jól elsku afi
7 desember 2011 - Ester Júlía

Verstu jól sem ég man eftir eru þegar ég sá afa gráta á jólunum. Þá var hann veikur og rúmliggjandi. Lenti í hræðilegu vinnuslysi og náði sér aldrei . Þetta voru síðustu jólin sem hann lifði. Ég var sextán ára og hafði farið með fjölskyldu minni heim til afa og ömmu að óska þeim gleðilegra jóla.
Epladraumur
27 nóvember 2011 - Ester Júlía

Ég er sólgin í epli og borða minnst 2 epli á dag. Ég nota þau sem millimál og sker þau niður í þykkar sneiðar, smyr lífrænu hnetusmjöri á eina sneiðina, set aðra sneið ofan á og borða sem samloku. Ég hreinlega elska þessa samsetningu og svo er hún meinholl.
Skotheld ráđ: Aukum lífsgćđin!
20 nóvember 2011 - Ester Júlía

Bensínhækkanir, vöruhækkanir og allskonar hækkanir. Hinsvegar standa launin í stað. Stress við að reyna að ná endum saman. Og í öllu þessu stressi og streði er auðvelt að gleyma sjálfum sér og hætta að hugsa um sjálfan sig. Kannast þú við þetta?
Zumba-smoothie orkubomba
18 nóvember 2011 - Ester Júlía

Má bjóða þér Zumba-smoothie svo þú getir dansað alla nóttina?
Orkan í þessum nægir þér svo þú getir dansað og dansað, eins lengi og þú vilt!
Zumba -náttúruleg víma!
11 nóvember 2011 - Ester Júlía
Ég hef alltaf haft rosalega gaman af að dansa, dansinn á óskaplega vel við mig og er eitt af mínum mörgu áhugamálum. Ég var í suður-amerískum og standard dönsum í mörg ár og keppti nokkrum sinnum á Íslandsmeistaramótum. Ætlaði mér alltaf að verða danskennari en því miður varð nú ekki úr því.
Einkaţjálfarinn sem ćtlađi ađ verđa bóndi
3 nóvember 2011 - Ester Júlía

Ég hef alltaf haft mikla þörf fyrir að hreyfa mig, alveg frá því ég var pínulítil. Hreyfing er mér í blóð borin. Ég er heppin að því leyti. Ég var alltaf úti í boltaleikjum með krökkunum og ég prófaði frjálsar íþróttir, fimleika, jazzballet, badminton, suðurameríska og standard dansa, var á fullu í hestamennsku og síðast en ekki síst fór ég að lyfta lóðum.
Af hverju einkaţjálfun?
29 október 2011 - Ester Júlía
Ég hef heyrt marga fussa og sveia þegar þeir heyra minnst á einkaþjálfun. Þetta er bara snobb og tískufyrirbrigði, segir þetta sama fólk. En ég veit betur. Ég veit hvað það hefur hjálpað mörgum gífurlega mikið að leita til einkaþjálfara. Ég veit hversu góð áhrif einkaþjálfari hefur haft á líðan fólks, líkamlega sem og andlega.
Ferskir heilsumolar
18 október 2011 - Ester Júlía
Hér býð ég upp á nokkra heilsumola sem ég vona að þið getið nýtt ykkur.
Suma hafið þið eflaust oft heyrt en það er alltaf gott að láta minna sig á. Góð vísa er aldrei of oft kveðin. Svo eru líka ferskir molar með; eitthvað sem þið eruð að heyra í fyrsta sinn og ykkur líst vel á. Aðalmálið er að reyna að tileinka sér nýjar og hollari lífsvenjur.
Farđu međ fundinn í göngutúr
14 október 2011 - Ester Júlía
Það er ekki eðilegt fyrir mannslíkamann að vinna í sömu stöðunni allan daginn. Ég vann á skrifstofu í mörg ár og veit alveg hvað það er að vera með vöðvabólgu í herðum og hálsi. Höfuðverkur er algeng afleiðing vöðvabólgu. En það er margt hægt að gera til að koma í veg fyrir bólgur og verki sem fylgja því að sitja við skrifborð heilu og hálfu dagana. Það er nauðsynlegt að taka sér 5 mínútna pásu á hálftíma fresti, standa upp, ganga um og teygja á skrokknum.
Ertu í tímahraki
9 október 2011 - Ester Júlía
Ég heyri fólk alltof oft tala um að það hafi engan tíma til að mæta í ræktina eða hafi of lítinn tíma í ræktinni. Það er alveg skiljanlegt miðað við hraðann í þjóðfélaginu. Það eru ekki allir sem komast í ræktina áður en þeir mæta til vinnu og eftir vinnu þarf að ná í börnin, versla, elda og svo framvegis. En við getum samt gert ýmislegt annað til að bæta okkur upp tímaleysið. Hér eru nokkrar hugmyndir sem þið ættuð að geta nýtt ykkur.
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





