logo

Heiša Žóršar

Ritstjóri

Lesa um höfund

Föndur fjósakonunnar

22 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Lára Björns er búsett á Fárskúrsfirði og föndrar undir nafni: Föndur Fjósakonunnar. Ég rakst á hönnun hennar á Facebook og heillaðist. Hver og ein vara er persónuleg og engin nákvæmlega eins. 
 

Ég geri fermingarbækur, sérstaklega fyrir hver og einn. Hver bók er hugsuð til að varðveita minningar barnsins á þessum stóra degi í lífi þess. Gestir rita nöfn sín í bókina og hægt er að líma inn minningar, myndir og kort svo eitthvað sé nefnt, segir Lára.

Furšulegustu störf ķ heimi

22 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Ertu óánægð/ur í vinnunni? Ertu óánægð/ur með eitthvað annað? Punkturinn með þessu er, að oft er óánægjan í garð vinnustaðarins manns eigið hugarástand. Nema kannski eru allir vinnufélagarnir með tölu grútleiðinlegir. Skítalaun. 
 
Sjaldnast held ég að það sé raunin. Ef þú hyggur á frekari frama, vertu þakklát/ur fyrir það sem þú átt og hefur nú. Starfið þitt.

Glešilegan öskudag

22 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Öskudagur er upphafsdagur lönguföstu, miðvikudagurinn í 7. viku fyrir páska. Dagsetning hans getur sveiflast á milli 4. febrúar til 10. mars, sem segir okkur að öskudagurinn í ár (5. mars 2003) er seint á ferðinni. Öskudagur hefur lengi verið mikilvægur í katólska kirkjuárinu og nafn hans er dregið af því að þá er sums staðar ösku dreift yfir höfuð kirkjugesta, og til þess notaður jafnvel sérstakur vöndur.

Leghįlsskošun -einföld en mikilvęg

22 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Leghálsskoðun er einföld rannsókn en mjög mikilvæg sem heilsuvernd. Því vill Leitarstöð Krabbameinsfélagsins, minna þig á að koma reglulega til leghálsskoðunar. 

Verstu photoshop mistök allra tķma!

21 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Mikið er ég fegin fyrir hönd þeirra sem hér birtast í mynd...að mistökin voru bara photoshop, en ekki alvöru. Við höfum gaman af svona vitleysu. Kíktu á þetta...

Heilsubošoršin tķu

21 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Heilsan eins og allir vita er afar dýrmæt. Hér á eftir fara heilsuboðorðin tíu, samkvæmt Krabbameinsfélaginu.

1. Reykjum ekki og forðumst reyk frá öðrum. Notum hvorki nef- eða munntóbak.
 
2. Takmörkum neyslu áfengra drykkja.
 

Draumar

20 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Draumar eru einkennilegt fyrirbæri. Suma drauma langar mann ekkert að muna eða man ekki. Á meðan aðrir draumar eru þess eðlis að mann langar ekki til að vakna aftur...
 
Ég er ein af þeim sem hef lent í því að vera vakin upp af ljúffengum draumi. Svo góðum draumi (mar...) að mig langaði ekki að vakna. Og varð "ultra" fúl. Langaði að vita framhaldið. Langaði að halda áfram, inni í draumaveröldinni. Hef lokað augunum og reynt ...en nei, allt kemur fyrir ekki.

Drottningarnar įn farša

20 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Við horfum á þær í tímaritum og dáumst að þeim. Fullkomnar, stjörnurnar í Hollywood. Sammála? Elsku þú, aldeilis ekki! Þær vakna grútmyglaðar með hárið út um allt, rétt eins og ég og þú. Með bauga undir augum og hvað eina. Það ætla ég rétt að vona að þú sannfærist þegar þú sérð myndbandið hér að neðan, að þú ert ekki síður falleg, eins og hver önnur.  Hættu að bera þig saman við aðra. Þú ert fallegasta eintakið af þér sjálfri. Það er bara þannig.

Veirur valda krabbameini ķ leghįlsi

20 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Bólusetning ein og sér er ekki nægjanleg vörn.

Laghálskrabbameinsleit

Með frumustroki frá leghálsi er unnt að greina leghálskrabbamein á forstigi eða á algeru byrjunarstigi. Leitaraðferðin er notuð í mörgum löndum. Leghálskrabbameinsleit hófst hér á landi árið 1964. Leitin beinist nú að konum á aldrinum 20-69 ára og eru þær boðaðar til skoðunar á tveggja til fjögurra ára fresti eftir aldri og fyrri leitarsögu.

Vaskar śr nįttśrulegu grjóti

19 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Vaskur þarf ekki endilega að vera bara vaskur. Vaskar koma í einhverjum stærðum og nokkrum gerðum. Hönnuðir, margir hverjir, kjósa nú að fara óhefðbundnar leiðir í leit sinni að efnivið í hönnun sína. Þar á meðal hönnun handlauga.
 
Það er ekkert því til fyrirstöðu að fá sér baðkar í stíl við handlaugina. Hugmyndafluginu ættu aldrei að vera nein takmörk sett. Hrikalega fallegir og flottir vaskar.
 
 

Allt ķ steik? Holl sunnudagssteik

19 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Nú skulum við elda eitthvað hollt og gott fyrir fjölskylduna. Eldum blóðrauða steik, án þess að borða kjöt.
 
Allt í lagi, kannski ekki blóðrauða...lokaðu bara augunum...hugurinn er svo magnaður. Þessi uppskrift klikkar ekki, safarík og einstaklega bragðgóð.
 
 

Hollywood-stjörnur -fyrir og eftir lżtaašgeršir

19 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Ég er á ljótunni. Kannist þið við þetta orðatiltæki? Fyndið, það er búið að finna þetta fína nafn yfir þetta fyrirbæri. En af hverju þurfum við að segja frá því? Ég er á ljótunni. Hvað vill maður heyra? Nei, hvaða djös vitleysa, þú ert alltaf svo sæt! Er það málið?
 
Vona að ástand þitt sé bara bundið við daginn, að ástandið sé ekki viðvarandi. Þessar stjörnur voru helsýktar af "ljótunni", nokkuð ljóst...svo sjúkar að þeim fannst þörf á skurðaðgerð/um. Kíktu á myndbandið:

Til hamingju meš daginn allar gyšjur Ķslands

19 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Elstu bókfestu dæmi þess að orðið konudagur sé notað um fyrsta dag góumánaðar eru frá því um miðja 19. öld, en það gæti verið langtum eldra í talmáli. Góa er næstseinasti mánuður vetrarmisseris samkvæmt hinu forníslenska tímatali og nafnið sést í elstu handritum eða frá því um 1200.

Góš hśšumhirša

18 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Fékk ansi skemmtilega ábendingu frá snyrtifræðingi sem býr erlendis. Viðkomandi hefur (eðlilega, enda snyrtifræðingur) mikið gaman af því að lesa, skrifa og stúdera allt er viðkemur almennri og heilbrigðri húðumhirðu.
 
Þetta hafði hún að segja daman: 

Bannaš aš rķša, reykja, rupla og ręna

18 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Það var skemmtileg reynsla að vakna upp og lenda beint í fanginu á almættinu. Mjög skemmtileg lífsreynsla.
 
Ég sat nefnilega í mestu makindum í fanginu á Guði. Hann bannaði mér að  reykja, ríða og blóta. Mér fannst það lítið bagalegt. Ég reyki hvort sem er ekki, nema bara í laumi. Í laumi fyrir sjálfri mér...og svo blóta ég aldrei, nema bara til að leggja áherslu á orð mín, í rituðu máli.


Žaš er hęgt aš kenna konum aš halda kjafti...

17 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Ég fann sjálfa mig, seinnipart einhvers dags, þar sem ég hafði stungið nebbagoggnum á milli blaðsíðna í bókinni Orðabók Andskotans. Fann skilgreiningu á fyrirbærinu konur.
 
Tipla hér niður tánum og birti skilgreininguna samkvæmt þessari ágætu bók. Ögn fært í stílinn...eða öllu heldur "mín föt"...

Hann skar žį ķ tvennt

17 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Ég á bróður sem á bróður sem er ekki bróðir minn. Sá bróðir gaf bróður okkar fiska í stóru búri. Bróðir minn gaf bróður okkar, sem jafnframt er bróðir hans, fiskana. Bróðir okkar leigði út fiskana ásamt íbúðinni. Leigjandinn drap alla fiska bróður míns. Alla nema þrjá.
 
Flókið nokkuð?

Opiš bréf til borgarstjóra um lögleišingu kannabis

17 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Ég frétti af spjallborði þar sem íslenskir einstaklingar koma saman, en þeirra helsta markmið og hugsjón er að lögleiða kannabisefni. Þarna hittist fólk og viðrar sínar hugmyndir, ekki ósvipað og á bland.is. Nema að við erum að tala um "efni" sem er ólöglegt á Íslandi og vefsíðu því tengdu, sem þrífst og hefur gert um árabil. Margt skrýtið í kýrhausnum.
 

Angelina Jolie -biography

16 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Angelina Jolie er bandarísk leikkona sem hefur unnið fjöldann allan af verðlaunum í gegnum tíðina fyrir leik sinn. Jolie er einnig sérstakur talsmaður mannréttinda. Hún er sérstakur sendiherra fyrir U.N.  Og hún hefur margoft verið nefnd sem fallegasti núlifandi einstaklingurinn.

Bolla bolla bolla -uppskriftir

16 febrúar 2012 - Heiša Žóršar

Bolludagurinn með öllu sínu rjómaáti er handan við hornið. Mér finnst það æði, elskar bollur. Sitt sýnist hverjum, en flestir sem ég þekki eru hrifnastir af þessum klassísku vatnsdeigsbollum. Ég er ein af þeim.
 
Uppskriftirnar hér að neðan eru einfaldar í framkvæmd. Og vatnsdeigsbolludeigið, hefur aldrei klikkað.
Ástin er gildra. Þegar hún birtist sjáum við aðeins ljósið, ekki skuggana.- Paulo Coelho

Ritstżrur