Rómans á Ítalíu VII -sögulok
30 september 2011 - Hildur Hinriks

Ég vissi ekki hvað ég átti að gera, Mauri ekki heima, og Alberto nakinn í rúminu mínu. Ég skutlaðist upp úr rúminu og hljóp fram. Berti þorði ekki á eftir mér, hélt auðvitað að Mauri væri heima og vildi ekki láta koma að sér nöktum frammi. Reyndar skrítið að hann skyldi yfirleitt afklæða sig, hafði held ég aldrei séð hann nakinn, hann var alltaf í sokkunum þegar við sváfum saman!
Rómans á Ítalíu VI
26 september 2011 - Hildur Hinriks

Sjitt, þetta ætlaði ekki að verða auðvelt! Ég hafði aldrei lent í þessu áður, maðurinn neitaði að hætta með mér! Ég þurfti ekki að fara í skólann á morgun, en ég vildi alls ekki vera eitthvað að taka á móti honum klukkan sjö í fyrramálið! Díses, prófin voru ekki fyrr en eftir tvo mánuði og hann talandi um stress.
Rómans á Ítalíu V
24 september 2011 - Hildur Hinriks

Síðast þegar ég hafði farið til Rómar hafði ég hitt fjölskylduna hans. Mamma hans var hnellinn rauðhærð kella frá Sikiley. Hann og bróðir hans deildu herbergi sem var í raun og veru stofan í íbúðinni sem foreldrar hans höfðu fengið í brúðargjöf. Amman bjó í sjónvarpsherberginu og stóra systir hans var gift og flutt að heiman, til að þurfa ekki að deila herbergi með bræðrum sínum eða ömmunni.
Rómans á Ítalíu IV
22 september 2011 - Hildur Hinriks

Mars leið áfram í rólegheitum og alltaf hitnaði í veðri. Kirsuberjatrén voru farin að blómsta og fallegi bleiki liturinn skreytti garða borgarinnar. Torínó hafði aldrei verið nein draumaborg í mínum huga en eftir tveggja ára dvöl vann hún á.
Rómans á Ítalíu III
18 september 2011 - Hildur Hinriks

Hvar var Mauri, meðleigjandi minn? Hann hafði lofað að vera komin heim. Ég gekk að dyrasímanum og svaraði. Hæ, þetta er Alberto, sagði hann. Ok ég kem niður, sagði ég og hlustaði ekki á mótmælin. Ég skellti mér í lyftuna og dró djúpt andann. Fyrir framan blokkina mína stóð Berti, klæddur í hræðilega Hawai skyrtu sem mamma hans hafði örugglega keypt á hann á markaðnum.
Rómans á Ítalíu II
13 september 2011 - Hildur Hinriks

Og núna var hann að hringja í mig til að rukka mig fyrir gjafirnar sem hann var búinn að gefa mér síðasta árið. Hálsmen, eyrnalokka, gervipels, úr og farsíma og svo eitthvað fleira smálegt. Fimmtíu þúsund íslenskar.
Rómans á Ítalíu
10 september 2011 - Hildur Hinriks

Ég var búin að búa hérna í 2 ár.
Það var svolítið skrítið til þess að hugsa að á þessum tveimur árum hafði ég aldrei farið heim. Mig langaði oft heim en ekki það mikið að ég hringdi í bankann til að fá hækkaðan yfirdráttinn. Það var svo rosalega dýrt að fljúga til Íslands frá Ítalíu, ekkert beint flug.
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





