Hungry for a change
27 april 2012 - Kristín Einarsdóttir


Ég er smám saman að halla mér meira og meira að fæðu byggðri eingöngu á plöntugrunni eða vegan fæðu. Ég lifi mjög heilbrigðu lífi og borða hollt en stundum er gott að ögra sjálfum sér og taka hlutina lengra. En svona nokkuð gerir maður ekki á einum degi, maður smám saman hallar sér inn í þennan lífsstíl.
Hrá snickerskaka
23 april 2012 - Kristín Einarsdóttir


Það er stranglega bannað að eiga uppskriftir án þess að gefa út leyfi til stuldar. Ég skrapp og gramsaði í skúffunni hjá Kristínu Einars og fann þessa snilld. Hnuplaði klístruðum miðanum og klíndí á Spegilinn...bara fyrir okkur allar hinar, sem erum líka sjúkar í súkkkkkkkk...þið vitið!
Vandaðu valið -lífið er stutt
24 febrúar 2012 - Kristín Einarsdóttir


Fyrir ofan vinnuborðið mitt er ég með óskaspjald. Þar gefur að líta markmið mín fyrir árið 2012. Ég er líka með myndir af þeim sem standa mér næst ásamt ýmsum jákvæðum staðhæfingum sem ég les yfirleitt yfir á hverjum degi. Ein af mínum uppáhalds þessa dagana er:
Súkkulaðimús Stínu og Oprah
19 febrúar 2012 - Kristín Einarsdóttir


Langar til að deila með ykkur dásamlega einfaldri eftirréttauppskrift. Upphaflega fékk ég hana frá sálusystur minni Oprah Winfrey. Það besta við þessa uppskrift er hversu fljótleg og einföld hún er.
Vangaveltur í lok árs
31 desember 2011 - Kristín Einarsdóttir


Áramót er sá tími sem við horfum gjarnan yfir atburði liðins árs, en horfum einnig fram á veginn, setjum okkur ný markmið og höfum væntingar um hvað nýja árið ber í skauti sér.
Vilt þú borða kjöt af þjáðu dýri?
13 desember 2011 - Kristín Einarsdóttir


Sástu myndina Food Inc Corporated sem sýnd var á RÚV í síðustu viku? En Silfur Egils á sunnudag, þar sem rætt var við Sif Traustadóttur dýralækni? Þið sem horfðuð…óþægilegt – úff, ég veit. Alveg hreint nístandi ógeðfellt.
Þegar markaðshyggjan svívirðir jólin
3 desember 2011 - Kristín Einarsdóttir


Tvöfalt siðferði mannanna er alveg magnað.
Ég er hér í svaka aðventustuði. Búin að vera að segja litla drengnum mínum frá spádómskertinu sem við kveikjum fyrst á, tala um Jesú , Maríu og Jósef. Jú og auðvitað fjárhúsið og kindurnar.
Orð eru til alls vís...
2 desember 2011 - Kristín Einarsdóttir


Þau eru sönglag, þau særa, þau leiðbeina. Þau upphefja, þau töfra, þau ráðskast með þig...
Hjarta mínu blæðir...
28 nóvember 2011 - Kristín Einarsdóttir


Lítið vitum við. Á ógnarhraða skautum við í gegnum lífið, lítum varla upp og erum að stefna að hinni einu sönnu hamingju. Hún er nefnilega þarna handan við hornið…
Lítið vitum við…
Tilgangur lífsins
10 nóvember 2011 - Kristín Einarsdóttir

Hefurðu spurt þig að því hvað það raunverulega er, sem þú vilt fá út úr lífinu? Fyrir mig var einn af stærri tilgangi lífsins, að fá að verða móðir.
Á sömu stundu og barn fæðist, fæðist einnig móðir. Hún hefur ekki átt tilveru áður. Konan var til, en ekki móðirin. Móðir er eitthvað algjörlega nýtt. Hér eftir verður þú aldrei einstaklingur aftur.
Hugleiðing um lánsemi íslenskra mæðra
1 nóvember 2011 - Kristín Einarsdóttir


Mæður á Íslandi, leiðið þið reglulega hugann að því hversu lánsamar við erum?
Það geri ég, og mér var það sérlega hugleikið nú um helgina er sjö ára sonur minn endaði Halloween partýið sitt, sem hann var búinn að hlakka til og undirbúa í margar vikur – með uppköstum og niðurgangi.
Til hamingju Ísland
20 september 2011 - Kristín Einarsdóttir


Nýjasta tölublað Newsweek er tileinkað konum. Þar má finna umræður um kvenréttindi og meðal efnis eru listar þar sem þjóðum er raðað eftir því hversu gott konur hafa það í viðkomandi löndum. Ísland er á toppnum en þar á eftir kemur Svíþjóð og Kanada er í þriðja sæti. Danir og Finnar koma svo í kjölfarið og þá Sviss og Noregur. Bandaríkin lenda síðan í áttunda sæti og Ástralir og Hollendingar í því níunda og tíunda.
Þverréttindakonur
18 september 2011 - Kristín Einarsdóttir


Mannkynssagan hefur að miklu leyti einkennst af mikilli kúgun, fordómum og mismunun í garð kvenna. Það vita allir upplýstir einstaklingar.
Frá því að ég man eftir mér hef ég stutt félagslegt, efnahagslegt og pólitískt jafnrétti kynjana. Ég er þeirrar skoðunar að allir eigi að fá sömu tækifæri og sömu laun fyrir sömu vinnu óháð kynferði.
Ert þú fiðrildi?
10 september 2011 - Kristín Einarsdóttir


Ofbeldi gegn konum og stúlkum eru algengustu mannréttindabrot sem framin eru í heiminum. Ofbeldið getur falið í sér líkamlega, kynferðislega, andlega og fjárhagslega misnotkun og þar er ekki spurt um aldur, kynþátt, menningu, fjárhag eða landfræðilega búsetu.
Stefnumót við raunveruleikann
19 ágúst 2011 - Kristín Einarsdóttir


Skreytum vefmiðlana með innihaldslausu pjattrófusmjatti og Smartlandi. Fréttum af því hverjir voru hvar, á milli þess sem við hömpum Jóni stóra og hneykslumst á því hversu mikið ,,lið” búi á Reykjanesinu. Hálfvitadýrkunin á Íslandi er í hámarki þessa dagana.
Ég segi: VAKNIÐ TIL VITUNDAR FJÖLMIÐLAR!!
Beint frá bónda
7 ágúst 2011 - Kristín Einarsdóttir


Sumar á Frönsku Rivierunni. Ys og þys. Ferðamenn hvaðanæva að úr heiminum flykkjast í flugförmum á strendurnar upp og niður rivieruna. Sumir koma í einkaþotum, aðrir koma með Easy Jet...eins og ég. Nokkrum er flogið rakleiðis með þyrlum út í snekkjurnar sem prúðbúnar og belgmiklar liggja í öllum stærðum út af ströndinni. Aðrir fara á hótel eða í íbúðir.
Ég tala ...frönsku
4 ágúst 2011 - Kristín Einarsdóttir


Ég tala varla stakt orð í frönsku, samt tala ég hana. Ég skil einhverra hluta vegna Frakka og þeir skilja mig. Veit ekki hvað það er, ætla ekki að gera lítið úr 103 frönskuáfanganum sem ég tók í Flensborg. Ég og Björk vinkona mín, við lærðum eftir allt ,,S´il vous plait” kennslubókina utan að. Ég kunni að segja að ég ynni hjá Renault verksmiðjunni, héti Kristín og væri frá Senegal. Svo einfalt var það.
Gjöfin
1 ágúst 2011 - Kristín Einarsdóttir


Það er laugardagsmorgun í fallega þorpinu við strendur Suður Frakklands. Ég sit á svölunum með kaffibollann minn. Himinninn er heiðskír og varla skýhnoðra að sjá. Það er strax komin molla, þó svo að klukkan sé varla níu. Fuglarnir syngja til mín og laufin á ólífutrénu bærast svo fallega í hafgolunni.
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-






