Gríman 4. hluti
21 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Ástlausir elskhugar
Konur sem eiga siðblinda elskhuga eru margar sammála um að þeir séu góðir elskhugar. En á sama tíma má sjá af lýsingum þessara kvenna að tilfinningar þeirra eru kaldar, falskar.
Ógleymanleg helgarferð
20 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Þegar ég var unglingur, þó í eldri kantinum sem slíkur, tók ég nokkur uppreisnarár. Vildi frekar vinna en fara í framhaldsskóla, sem ég svo gerði aðeins seinna. Hins vegar sé ég ekkert eftir því. Maður gat grallarast með vinnufélögum.
Börnin okkar, kerfið og tálmanir
18 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Um daginn skrifaði ég pistil, Tálmun og tálmun, sem tekur lítillega á þessu afskaplega viðkvæma málefni sem varðar baráttu foreldra um börn sín eftir skilnað. Eftir að hafa heyrt meira af þessum málum finnst mér við hæfi að fjalla aðeins um kerfislegu hliðina.
Með fjársjóð í rúminu
17 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Kvöldið hafði verið óvenju erilsamt, en á góðan máta. Í fyrsta skipti í langan tíma horfði ég á fréttir með bros á vör. Það hafa heil ósköp dunið á okkar litlu þjóð undanfarið og mörg heimili blætt út. Önnur á leiðinni í sömu ógöngur. Stjórn í samkrulli við Alþjóða Gjaldeyrissjóð gert hvað hægt er til að herða sultarólarnar, hirða til sín eignir almennings í formi t.d. húsnæðis og skattlagt alla í kaf.
Gríman 3. hluti
16 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Samband með siðblindum
Þar sem siðblinda er ólæknanleg mun hinn siðblindi endurtaka ákveðið ferli í samböndum sínum aftur og aftur. Það skiptir engu máli hvaða kona á í hlut eða hversu lengi sambandið hefur varað.
Gríman 2. hluti
15 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Vaknaðu kona og horfðu á staðreyndir
Fræðimenn sem hafa kannað siðblindu hafa sett fram þá tilgátu að í raun sé um geðsjúkdóm að ræða. Mjög ákveðinn og ólæknandi sjúkdóm.
Góður Valentínusardagur
14 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Meðan turtildúfur eru að pískra um hvað eigi að gera merkilegt við þennan dag, þá sit ég alsæl með skottunni minni og dunda við heimilið.
Gríman 1. hluti
14 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Hinn ofurfullkomni sjarmur
Það er alveg ótrúlegt að lesa sér til um siðblinda (Psychopaths). Í raun eru þetta snillingar, en því miður snillingar sem eru öðrum mjög hættulegir. Miðað við þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á siðblindu erlendis er með ólíkindum hve lítið hefur verið fjallað um hana hér.
Má bjóða þér stöðu sem leikfang?
13 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Hún sat á kaffihúsinu og sötraði kaffið sitt. Ekki með neinum hávaða, en naut þess að sitja þarna og hlusta á fuglana sem loksins voru farnir að syngja sín fegurstu ljóð. Sólin gægðist af og til á milli skýjanna og litaði tilveruna af yl og birtu. Við næsta borð sátu erlendir ferðamenn íklæddir lopapeysum og vatnsheldum yfirhöfnum. Innlendir kaffihúsagestir nutu vorblíðunnar í léttum efnislitlum jökkum.
Gullkorn
12 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Ég var að sýsla í eldhúsinu. Skottan mín var með vinkonu í heimsókn úr leikskólanum og það var glatt á hjalla. Svo gaman að ég var fullviss um að það tæki dágóðan tíma að koma öllum leikföngum haganlega fyrir aftur í barnaherberginu.
Er ég veðurguð?
11 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Það hefur ekki farið fram hjá neinum í henni Reykjavík og nágrenni að við höfum fengið alveg góðan slatta af snjó í vetur. Hef aldrei áður upplifað að þurfa að fara í klofstígvél, bara til að fara út með ruslið.
Tálmun og tálmun
10 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Þann 8. febrúar las ég afskaplega dapurlega grein um föður sem ekki hafði fengið að sjá börn sín svo mánuðum skipti. Samkvæmt því sem lesa mátti úr þessari frétt stóð ekkert í vegi fyrir eðlilegri umgengni nema reiði móðurinnar.
Barnið hvað?
9 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Foreldrar skilja. Það er staðreynd. Sumir hafa sín ágreiningsefni, en eðlilegir og vel þenkjandi foreldrar halda börnunum sínum utan við þetta ferli. Þroskað fólk. Enda báðu börnin ekki um þetta.
Börn sem alast upp hjá siðblindu foreldri
8 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Það er alltaf erfitt að alast upp hjá siðblindri móður eða siðblindum föður. Helstu einkenni slíks uppeldis og afleiðingar þess eru af ýmsum toga.
Leiklist og blómabörn
7 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Leiklist er tær tæknileg snilld. Þá meina ég tæknileg, því þetta er tækni til helvítis. Allt annað en maður hafði nokkurn tíma látið sér detta til hugar.
Þegar hjartanu blæðir...
7 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


...verða líkami og sál veik. Já, svo ofureinfalt er það. Ef þú virkilega vilt ráðast að manneskju þá ræðst þú að þeim sem stendur hjarta þeirra næst. Mun fremur en þeim sjálfum. Góð manneskja nefnilega gerir allt fyrir sína nánustu.
Ég veit hann fer illa með mig en ég elska hann
6 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Sambúð með siðblindum einstaklingi byrjar oft sem spennandi og eldheitt ástarsamband. Konan [að sjálfsögðu getur þetta einnig átt við karl en af því að siðblindar konur eru miklu færri en karlar er þolandi siðblinds eintaklings oftast kvenkennd í þessari færslu] er blinduð og upp með sér af gullhömrum þess siðblinda, áhuga hans og kappsemi og fellst á allar uppástungur hans og áætlanir.
Það er kveikt á tunglinu
5 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Hér kemur ein yndisleg sönn saga að vestan. Við borgarbúar höfum kannski kvartað undan snjó en snjóþungi vestur á fjörðum nú og fyrr er svolítið önnur saga. Þessi saga gerðist fyrir örugglega meira en fjörutíu árum og kemur frá góðum vini.
Andlegt ofbeldi
4 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Konur sem eru beittar líkamlegu ofbeldi eru oft beittar andlegu ofbeldi í leiðinni. Og einnig er til í dæminu að siðblindur beiti einungis andlegu ofbeldi. Það getur falist í stöðugum yfirheyrslum, auðmýkjandi ummælum, sjúklegri afbrýðisemi og stjórnunartaktík. Margar konur segja að andlega ofbeldið sé verra en að vera lamin. (Tjora, E. 1996. „Kvinnemishandling, et alvorlig helseproblem“ í Medicinsk årbog 1996,s. 23-31. Norli, Oslo. Tilvitnun í Dahl, Alv A. og Aud Dalsegg. 2000, s. 183.)
Herra Casanova
3 febrúar 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Ég var einu sinni í sambandi með manni. Sá taldi sig örugglega vera sjálfan Casanova, svei mér þá.
Ástin er gildra. Þegar hún birtist sjáum við aðeins ljósið, ekki skuggana.- Paulo Coelho






