logo

Petra Sif Jóhannsdóttir

Snyrtifræðingur

Lesa um höfund

Allt um sólarvarnir

Núna fer sumarið að byrja og þá er gott að eiga sólarvörn ef það skyldi nú koma rosa gott veður...veist þú hvað þú átt að velja? Hvað SPF þýðir? Þekkirðu muninn á UVA og UVB ?
 

Viltu stærri og fylltari varir?

Margar stelpur og konur leita eftir að fá stærri, flottari og kyssulegri varir. Ég hef nokkur ráð sem ég ætla að deila með ykkur lesendum.

Er hárið þurrt eftir veturinn ?

Hár, neglur og húð eiga það til að verða þurr eftir veturinn og mér fannst tilvalið að setja inn tvo einfalda hármaska sem þú getur gert heima.

Mig langar að deila með ykkur tveimur góðum möskum fyrir hárið. Njótið vel.

Fróðleikur um neglurnar

Neglurnar á okkur eru merkilega byggðar. Þær eru mörg lög saman sem gerir þær þykkar eða linar. Þar sem neglurnar eru „lifandi“ þá þurfum við að gefa þeim næringu. Næringin berst frá húðinni sem er undir nöglunum en það er gott að nudda kremum eða olíum í kringum neglurnar og undir þær að framan. Öll lög naglarinnar þurfa næringuna sína annars geta þær klofnað eða orðið linar.

Allt um slit!

Margar konur fá slit! Og hugsa: Get ég losnað við þetta? Get ég komið í veg fyrir að ég slitni? Hvað er slit? Af hverju fæ ég það og hvert er galdraráðið?

Súkkulaðimaski

Hvaða konur eru ekki veikar fyrir súkkulaði? Það er bara svo ljúffengt! En síðan kemur það upp á móti að það er ekkert sérlega hollt ef maður borðar það í óhófi. En súkkulaði er ekki bara gott í munninn heldur gerir það húðina silkimjúka, það er fullt af andoxunarefnum, rakagefandi og verndar húðina fyrir virkum stakeindum sem skemma húðina. Ég er auðvitað að tala um hreint súkkulaði, 70% eða kakóduft ekki mjólkursúkkulaði eða mars stykki...

Kostir vaxmeðferða

Eitt af því sem fylgir tískubylgjunni nú til dags eru vaxmeðferðir. 
 
Kostir við vaxmeðferðir eru tvímælalaust þeir að hárin eru lengur að vaxa upp og verða ekki eins hörð. Þú færð ekki „brodda“ nánast daginn eftir eins og þegar þú rakar þig eða notar háreyðingarkrem. Hárin geta þó komið ljósari til baka, en þau geta líka orðið dekkri. 

Hvaða vörur eru bestar fyrir húðina þína?

27 febrúar 2012 - Petra Sif Jóhannsdóttir

Já, hvaða snyrtivörur á ég að velja fyrir húðina mína? Alltaf er þessi stóra spurning í höfðinu á okkur. Hvað eigum við að nota, hvaða vörur eru bestar fyrir okkar húðtegund? Hvað ber að varast og svo framvegis.
 
Þá er athuga fyrst hvernig húð við erum með.

Brúnka í skammdeginu

21 febrúar 2012 - Petra Sif Jóhannsdóttir

Hver kannast ekki við hvíta, föla húð á þessum tíma ársins? Það eru margir sem vilja fríska upp á útlitið með brúnkusprautun eða brúnkukremi.
 
Hvað er það sem þarf að gera til þess að fá flotta og jafna brúnku ?
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur