Ástríða í einum bita
21 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Hvað ef mig langar að vita hvað þér finnst? Um annað en það...þú veist. Mun það falla mér í geð? Ef við förum afsíðis og annað kemst að en aðeins eitt og ekkert meir.
Gimsteinn úr skríni
21 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Hún er uppfull af ábyrgð og skipulögð í skólanum. Skapstirð ef eitthvað passar ekki saman, á stundum engin föt. Hún fer alls ekki út með hvernig tösku sem er, hatar oft á sér hárið...samt er það viðráðanlegra en allra annarra í kringum hana. Toppurinn nær niður í augu, hann má ekki klippa of stutt. Þá er lífið ónýtt. Já, hún er oft á tíðum dramadrottning. Hún er drottningin mín.
Gift eða ekki...lesning dagsins
20 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Við í Speglinum höfum þá stefnu og hið háleita markmið að vera jákvæðar og uppbyggjandi. Birta heillaráð og hugleiðingar og efni sem vekur til umhugsunar. Lesningin hér á eftir er á ensku. Ég hef lesið söguna áður og jafnvel þú líka. En ég las hana aftur þennan morgun, og hún snerti jafn mikið við mér og í hið fyrsta sinn. Hugvekja dagsins birtist hér á eftir...
Marengo kjúklingur
20 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Marengo er nafnið á þessum kjúklingarétti sem ég rak nefið í um daginn. Og prófaði, en ekki hvað? Mér skilst að þessi klassíska uppskrift nái allt aftur til Napóleons en ég sel það nú ekki dýrara en ég keypti það. Hitt er annað, að hér er listagóð uppskrift á ferðinni og virkilega þess virði að bæta í kjúklingabunkann hjá þér.
Ertu með flösu?
20 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Heimatilbúin úrræði til að berjast við flösu í hársverði henta hárinu þínu miklu betur en efnin sem notuð eru í sjampó og áburð ýmiskonar út úr búð og apóteki. Þessi meðferð hér er tvíhliða; fyrst notarðu hörfræ olíu í hárið og fylgir því eftir með eplasíder ediki, sem er bráðsnjallt gegn bakteríum.
Sykursætur skrúbbur
19 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Sykur er betra val en salt í andlitsskrúbba, hann rífur ekki eins í skinnið. Þegar dauðar húðfrumur safnast á yfirborði húðarinnar, er mikilvægt að skófla þeim í burtu. Það gerir ekkert nema gott, og opnar fyrir stíflur í leiðinni.
Haframjöl á húðina
19 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Ég er orðin hálfgerður kuklari síðan við skelltum Speglinum í loftið í haust sem leið, alveg satt. Því nú geri ég reglulega úttekt á úrvali af andlitsmöskum, baðolíum og alls kyns húðdóti á netinu. Þá meina ég það sem við getum gert sjálfar heima, það er hrikalega kósý og alveg í stíl við kreppuna. Koma svo stelpur, þessi er æði!
Svæfðu mig í himnaríki
18 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Ég teygi út úr mér tyggjóið til beggja átta, bý til nærbuxur með gati. Ég er að hugsa. Það er eina sem ég hef, komdu með...og ég fer úr sokkunum.
Stútfull súpa
18 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Ég tók mig til um daginn og byrjaði að tilraunast með linsubaunir, svo skelfing næringarríkar. Ég er viss um að samkrullið af chia, linsum og öllu öðru sem ég raða hér á borð...stútfyllir okkur stelpurnar af hollustu. Við ljómum að innan sem utan. Svo er klósettpappírinn með ilmefnum. Ilmandi sálir og afturendar skottast nú um í kringum mig. En hér er súpan...þetta var útúrdúr.
Framtíðin frá því í gær
17 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Ég sit oftast ein á kvöldin, þegar aðrir sofa. Það er sitthvað sem rímar við sófann eða stólinn, jafnvel er ég tylli mér á eldhúsbekk. Ég tengi það við vana, það sem fylgir mér öllum stundum. Nema stundum. En þá er ég annars staðar.
Mona með súkkulaði
17 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Á Spáni er ekki hefð fyrir páskaeggjum úr súkkulaði. Né nokkur einasti bolludagur eins og við þekkjum hann. Þess í stað borða Spánverjar sætt brauð sem kallast mona og bíta í súkkulaðistykki með.
Gluggar
16 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Það fer bráðum að koma vor, látið ekki svona! Segi ég og sit krókloppin við skrifborðið suður á Spáni. Mér hitnar nú kannski ef ég fer í að þrífa gluggana snöggvast. Nei, ég efast um það. En ég mun klárlega þrífa þessar elskur þegar það fer að hlýna og sólin fer að skína.
Að skrifa
16 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Ég skrifa. Alla daga, öll kvöld og leitast við að verða betri. Ég á mér draum um að geta fengist við einmitt það um alla framtíð. Ég er með bakteríuna. Hvað með þig? Ertu að skrifa? Mundu þetta...
Saltkjöt og baunir
16 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Jæja þá, nú er komið að því. Það styttist í saltkjötið og baunirnar. Þjóðlegt og gott, virkilega kraftmikið. Þetta þurfum við víkingarnir. Ekkert væl, sjóddu saltkjöt og baunir!
Hollar stangir
15 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Vantar ekki oft smá aukabita í nestisboxið? Eitthvað svona semi sætt en jafnframt saðsamt og bragðgott. Svona stangir eru oft í dýrari kantinum, því ekki að búa þær til sjálfur bara? Kokkalandsliðið á svona í öllum skúffum held ég. Heppnir þeir sem seilast í bita milli mála á þeim bænum.
Mamma er ekki heima
15 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Ég átti einu sinni mann. Og þurfti að skreppa að heiman...hann fékk bréf. Man bara ekki alveg hvort honum þótti það fyndið.
Langar þig í eitthvað?
14 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Stundum fáum við þessa óstjórnlegu löngun í eitthvað ákveðið, þið vitið. Oft eitthvað sem við ættum kannski ekkert að vera að fá okkur...eða kannski jú. Allavega, hér er pæling...
Listamannalaun
14 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Ég er að bursta tennur, dáist um leið að fallegum hringlaga ramma um spegil. Skemmtilegt mynstur sem þrykkt er í fólíu af áli. Hver skyldi hafa átt þá hugmynd? Hrint henni í framkvæmd? Ég hengi sloppinn á snaga, útskorinn í timbur með kringlóttum skífum úr beini við hvern krók, listilega lagaðan og alveg í stíl við stykkið í heild. Ég slekk á hugljúfri söngkonunni sem semur lögin sín sjálf. Og skríð upp í rúm.
Holdafar poldafar
13 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Mikið get ég orðið langþreytt á umfjöllun um holdafar. Ég meina þegar hún stendur upp úr öllu öðru og gnæfir yfir eitthvað sem miklu meira máli skiptir. Ekki misskilja mig. Auðvitað vil ég og trúi á að fólk eigi að hugsa um heilsuna alla tíð. Borða fjölbreytt og hreyfa sig eins og því hentar. En guð hjálpi mér bara að ég vilji að allir séu endalaust í megrun eða fitun eða mátandi sig við myndir af allt öðru fólki. Hvað varð um að knúsa spegilinn?
Andskotans eiturlyf
13 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Það er víst eitt sem er á hreinu í þessu lífi. Að við munum öll deyja. Einn daginn, kvöldið eða nóttina. Bara slökkva og hverfa á braut. Verðum við sátt þegar þar að kemur? Gerðum við vel, lifðum við lífinu sem best við gátum eða horfðum við á það fljóta hjá? Misstum við af kafla eða tveimur?
Ástin er gildra. Þegar hún birtist sjáum við aðeins ljósið, ekki skuggana.- Paulo Coelho






