Blúsađ um bćinn
28 mars 2012 - Svanfríđur S. Sturludóttir

Hin árlega Blúshátíð nálgast hratt.
Ég ætla ekki að fjalla um hana með því að segja ykkur hverjir verða að spila þar, heldur hvernig upplifun það er að fara á hátíðina. Það er margt sem maður tekur sér fyrir hendur í lífinu, og stundum mis gott.
Jólabókadagur
26 desember 2011 - Svanfríđur S. Sturludóttir

Já hann heitir einmitt það hjá mér og minni fjölskyldu, öll 3 viljum við bækur. Og að vera sem lengst í náttfötunum þennan dag, borða kalt hangikjöt með malt og appelsín, og lesa bækur. Svo skiptumst við á bókum.
Ástin og lífiđ
20 desember 2011 - Svanfríđur S. Sturludóttir

Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn að fjalla um þetta mál. En ef það er eitthvað sem við ráðum ekki við, þá er það ástin og lífið. Hvort tveggja hefur okkur í hendi sér, ja allavega hjá mér. Lífið bara líður og heldur áfram og tekur beygjurnar; maður verður að fylgja þeim, annars fer maður útaf.
Pistlar og postular
8 desember 2011 - Svanfríđur S. Sturludóttir

Það er komið í ljós að eftir að hafa fengið nokkuð marga pistla birta hér í Speglinum, þá finnst mér ákaflega gaman að skrifa. Það er gaman að eiga einhvern heim sem býr í kollinum á manni og öðlast líf við birtinguna.
Hiti í kolunum
4 desember 2011 - Svanfríđur S. Sturludóttir

Þegar maður býr á svona ísköldu landi eins og Íslandi, gerast heitar sögur oftast að sumri til. Þessi er ein af þeim sem þó má flokka undir veturinn...líka vegna þess að hún þolir illa dagsljósið.
Ciao mio bello
28 nóvember 2011 - Svanfríđur S. Sturludóttir

Þú hringdir og baðst mig um að hitta þig. Ég var í sambandi með öðrum manni. En þú baðst svo fallega, bara örstutt andartak í lífinu, baðstu um.
Vagg og velta
22 nóvember 2011 - Svanfríđur S. Sturludóttir

Um hvað snýst þetta allt? Um hvað snýst lífið og tilveran? Til hvers erum við hér, á þessari jörð?
Sögur af nesinu
15 nóvember 2011 - Svanfríđur S. Sturludóttir

Afi minn og amma keyptu hús í kringum 1978, það hét Grund. Undir jökli. Þau keyptu það af miklum heimspekingi Íslendinga eða Gunnari Dahl, sem er ekki í frásögur færandi nema hvað að Gunnar skildi eftir gjöf.
Ađ missa kúliđ
27 október 2011 - Svanfríđur S. Sturludóttir
Ég bara verð að segja ykkur frá því hvernig það er að missa kúlið. Það fólk sem þekkir til mín veit að ég get verið svaka röff, töff, og með ískalt kúlið uppi við.
Laus og liđug
23 október 2011 - Svanfríđur S. Sturludóttir
Eftir 23ja ára sambúð og hjónaband, 39 ára gömul, var ég orðin fráskilin, einstæð með 2 börn. Ég ætla ekki að tala um skilnaðinn, hann er alveg sér kapítuli. Heldur um hvernig það var að finna sjálfa sig eftir svona langa sambúð, sem var byggð á vináttu, ást, lífsbaráttunni, því að eignast börn og öllu sem okkur fannst við ættum að eiga.
Djúpur -leikandi léttur blús
8 október 2011 - Svanfríđur S. Sturludóttir

Það gerist fátt betra í karlmannsleysi en að skella sér á þrusu góðan blús. Og byrja snemma á kvöldinu, með mat eftir kenjum kokksins. Eiga svo frátekið borð á efri hæðinni þar sem maður sest í stól og lætur leka úr sér þreytu dagsins. Fá sér kaffi eftir góða máltíð og svo heyrir maður fyrstu tónana streyma úr hljóðfærunum.
Einu sinni var svanur
12 september 2011 - Svanfríđur S. Sturludóttir

Þegar svanurinn var ungur að árum, var hann eins og aðrir svanir, grár og ekki beinlínis fallegur á að líta. En svanir verða að lokum stórir og fallegir fuglar.
Þeir eru furðufuglar sem maka sig ævilangt og halda tryggð svo lengi sem makinn lifir. Ef hann deyr, finna þeir stundum annan...stundum.
Málverkiđ
24 ágúst 2011 - Svanfríđur S. Sturludóttir
Ertu að vanda þig við að mála, skissa, gera uppkast...?
Gerðu þitt besta, það ætti að vera nóg.
Vegir liggja til allra átta
15 ágúst 2011 - Svanfríđur S. Sturludóttir
VEGIR! Hvaða merkingu hafa þeir fyrir mig?
Ég skrapp í bíltúr um helgina og komst að því að vegur í vestur er ekki sá sami og í austur og þá meina ég svona meira huglægt. Við búum á eyju. Það er ekki um marga vegi að ræða ef maður vill fara helgarrúnt. Fyrir mér eru það aðallega fjórar áttir; Suðurnesin, vestur á nes, norður og svo austur fyrir fjall með Suðurlandsundirlendinu. Ég ætla ekkert að skafa af því. Ég sé þetta kannski í öðru ljósi en annað fólk, ég sé þetta myndrænt.
Ađ vera ţroskađri kona
13 ágúst 2011 - Svanfríđur S. Sturludóttir
Áður en hefðbundinn morgunmatur fer ofan í mig er að taka inn nokkra góða fyrir gömlu konuna.
Fyrst er það 30 ml af birkisafa (sem bragðast illa) en er svona svaðalega góður gegn öllu sem heitir vökvasöfnun eða bjúgur. Síðan er það magnesíum, kalk, D+, fjölgerlahylki, sólhattur og að endingu chello forte sem er undraefni fyrir konur á breytingaskeiði...alveg náttúrulegt. Mjög svipað og kvennablóminn en mun ódýrara. Og með þessu er drukkinn minnst hálfur líter af vatni.
Vangaveltur
11 ágúst 2011 - Svanfríđur S. Sturludóttir
Skilur einhver skilning? Eða skilnað? Ég hef mikið velt þessu fyrir mér.
Þetta orð er notað í merkingunni að skilja eitthvað, og að skilja við einhvern eða eitthvað. Sem sagt að sýna skilning,en jafnframt að skilja eitthvað eftir. Svolítið vandasamt ef maður pælir í því.
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





