Reiðin býr í lifrinni - losaðu þig við hana!
7 maí 2012 - Heiða Þórðar


Reiði er baneitraður andskoti. Langvinn og óeðlileg reiði getur valdið allskyns líkamlegum óþægindum og jafnvel drepið þig.
Stundum er sagt að reiðin búi í lifrinni, en þar safnast skíturinn fyrir og eiturefnin. Er komin tími á hreinsun hjá þér?
Minningargreinar eru prump!
5 maí 2012 - Heiða Þórðar


Á fjórum fótum með rassinn upp í loft, hálf undir rúmi teygði ég mig í kassann minn góða sem geymir ýmsar gersemar. Inn á milli meðmælabréfa lá gulnuð úrklippa úr mogganum. Minningargrein sem ég skrifaði 1997, þegar föðuramma mín lést. Aðeins neðar; önnur til pabba. Aðrar hef ég ekki skrifað og mun ekki gera. Ég nefnilega komst að því fyrir tilviljun að Guð er ekki áskrifandi af Morgunblaðinu og því tilgangurinn lítill sem enginn.
Gagnlegar mælieiningar í eldhúsinu
5 maí 2012 - Heiða Þórðar


Rakst á áhugaverðan lista sem vert er að deila hér. Alls konar samanburður á mælieiningum til að brúka við bakstur og eldamennsku.
Mundu eftir honum næst þegar þú lendir í vandræðum með mál og vog!
Töframáttur ediks
4 maí 2012 - Heiða Þórðar


Tuttugu heillaráð um hvernig nýta má edik...
Edik er gott og mýkjandi fyrir húðina. Tilvalið að setja hálfan bolla út í baðvatnið.
Edik er fitulosandi. Tvær msk. edik út í glas af vatni, nokkrum sinnum á dag.
Edik dregur úr matarlist. Tvær msk. edik út í glas af vatni. Drekkið nokkur glös á dag.
Ball ársins í Stapa!
3 maí 2012 - Heiða Þórðar

_(1).jpg&newxsize=200&newysize=200&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0)
Nú fer að líða að vinsælasta balli ársins!
Ásbergballið verður haldið með pomp og prakt næsta laugardagskvöld 5. maí í Stapa Reykjanesbæ. Húsið opnar kl. 23:00 og stendur fjörið fram til kl. 04:00. Fimm tíma danssprengja. 30 ára aldurstakmark!
Kjaftapíkur og eitraðar smákökur
2 maí 2012 - Heiða Þórðar


Elsku vinkona sem lest þennan pistil, ég bið þig um að íhuga orð mín...þú þarft ekki einu sinni að vera fræg, eða að hafa unnið til stórafreka, hvað þá notið sérstakrar velgengni í lífinu, þú ert einfaldlega aldrei óhult fyrir hor-ætunum. Guð forði þér frá því að misstíga þig eða teljast til þeirra sem eru álitnir fallegir í víðum skilningi þess orðs; þá koma banhungruðu, gráðugu og vansælu hrægammarnir og éta þig.
Heitustu sólgleraugun frá Channel - MYNDBAND
1 maí 2012 - Heiða Þórðar


Sólgleraugu eru flottur fylgihlutur og nauðsynlegur. Ég kíkti ögn lengra en út í sumarið sem er að smella á. Hér á eftir fer tískan frá Channel haust/vetur 2012 í sólgleraugum.
Sum "augun" eru frekar fríkuð -en önnur GEGG flott!
Njóttu!
Til hamingju með daginn!
1 maí 2012 - Heiða Þórðar


Á vefsetri ASÍ (Alþýðusambands Íslands) er sagt frá því að á þingi evrópskra verkalýðsfélaga í París árið 1889 var samþykkt tillaga frá Frökkum um að 1. maí skyldi verða alþjóðlegur frídagur verkafólks.
Frakkar lögðu til að verkafólk notaði daginn til fjöldafunda til að fylgja eftir kröfum um 8 stunda vinnudag og aðrar umbætur á kjörum sínum. Rússar lögðust gegn tillögunni.
Magnaðir endurfundir! MYNDBAND
30 april 2012 - Heiða Þórðar


Ljónið Christian var upprunalega keypt af John Rendall og Bourke árið 1969.
Rendall og vinur hans Jones, önnuðust ljónsungan þar til hann varð eins árs gamall og fengu þeir heimild frá bæjaryfirvöldum í London til að sleppa Christian lausum í nærliggjandi kirkjugarði, fyrir leik og þjálfun.
Að hoppa úr einu í annað
29 april 2012 - Heiða Þórðar


Hver hefur ekki lent í því? Að hoppa úr einu í annað. Þá er ég ekki að tala um að skipta um vinnu eða henda úr þvottavélinni í þurrkarann, nei ég er að tala um að hoppa úr einu sambandi yfir í annað.
Útkoman? Ef þú spyrð mig,….sú sama. Hvorki betri né verri. Bara eins, eða svipuð, eftir skamman tíma. Hinkraðu bara og vittu til.
Étur þú ekki neitt?
28 april 2012 - Heiða Þórðar


Sumt á sér stað og stund, annað engan veginn. Hvorki stund né stað. Mig langar að deila með ykkur smá sögu, eða sjónarmiði þar sem ég eins og svo margir fleiri eru komnir með upp í kok af útlitspælingum fyrir allan peninginn!
Allan!
Við vitum jú öll að við erum misjöfn af guði gerð. Takk guð segi ég nú bara. Komum í allskyns útgáfum og flottum.
Okkar eina sanna Sigga Kling um fermingardaginn sinn
27 april 2012 - Heiða Þórðar


Siggu Kling þekkja allir. Hef dáð hana um árabil ekki síst fyrir sjarma hennar og sannfæringu. Ég spurði Siggu út í fermingardaginn hennar og æsku og það sem stóð uppúr á fermingardaginn hennar.
Látum Siggu hafa orðið, enda konan engri lík.
Bananar
24 april 2012 - Heiða Þórðar


Bananar koma upphaflega frá SA-Asíu og Ástralíu og eru ríkuleg uppspretta af A-, B- og E- vítamínum. Þeir innihalda mikið magn mjölva, sem er afar orkugefandi. Og að auki eru þeir ríkir af steinefnum eins og fosfóri, járni, kalki og sinki.
Falleg íslensk hönnun! - VIÐTAL
14 april 2012 - Heiða Þórðar


Margrét Lára hefur hannað skart og fylgihluti síðan árið 2009. Ég heillaðist alveg gjörsamlega þegar ég rakst á vörurnar hennar.
Gripirnir eru fágaðir og fallegir og ekki skemmir fyrir að verðum er stillt mjög svo í hóf.
Margrét Lára tók vel í beiðni mína þegar ég spurði hana út í hvernig ævintýrið hófst. Gefum henni orðið:
Listin að borða ódýrt og hollt
10 april 2012 - Heiða Þórðar


Það er ekkert mál að borða ódýrt, hollt og gott ...án þess að borga fyrir það handlegg og tvær tær.
Gott er að huga fyrst að grunntegundunum, þær eru ódýrar og afar mettandi.
Flott er að bæta síðan við grænmeti, ávöxtum, kjöti, fiski og eggjum. Annars verður fæðið harla ófjölbreytt.
Má bjóða þér bleikan banana eða bananatyppi?
9 april 2012 - Heiða Þórðar


Það er ekkert leyndarmál að ég elska banana, þér er velkomið að lesa allt um það með því að ýta hér.
Á myndunum má sjá hvernig búið að er að taka minn ástkæra ávöxt og útfæra kvikindið í einhversskonar höggmyndir, typpi, önd og einhvers konar ógnandi morðstál-tól.
Það er sem ég segi; bara að kíkja út fyrir rammann -því "the sky is the limit". Það er ekkert í veröldinni bara svart og hvitt.
Að eiga góða vini er ómetanlegt
9 april 2012 - Heiða Þórðar


Ég fékk svo fallega gjöf senda frá vinkonu minni fyrir nokkrum dögum.
Gjöfin kostaði hana ekki krónu, en fyrir mér var gjöfin sú allra dýrmætasta, einmitt á því augnabliki.
Svona gjafir fyrir mér eru bestar, fallegastar og verðmætastar. Hún sendir mér ljóð. Það er svona:
Örnámskeið í meðvirkni
8 april 2012 - Heiða Þórðar


Laugardaginn 14.apríl mun Lausnin bjóða upp á örnámskeið fyrir þá sem vilja fræðast um grunnorsakir, samskiptaörðuleika, skilnaða, fíkna og ofbeldis. Námskeiðið stendur yfir í 3 klukkutíma og kostar 4.000 kr.
Örnámskeið þetta, fjallar um hvernig meðvirkni verður til, hvernig hún þróast og hvaða áhrif hún hefur á fullorðinsár okkar. Einnig verður fjallað um það hvernig hægt er að takast á við meðvirknina og hvaða úrræði eru í boði.
Uppruni páskaeggsins
8 april 2012 - Heiða Þórðar


Saga páskaeggsins á Íslandi er ekki löng og nær reyndar ekki lengra aftur í tímann en til annars áratugs 20. aldar. Saga páskaeggsins er þó mun lengri í Evrópu.
Upphafið má rekja til þess að á miðöldum þurftu leiguliðar í Mið-Evrópu að gjalda landeigendum skatt í formi eggja fyrir páska. Leiguliðar þurftu reyndar að greiða landeigendum skatt nokkrum sinnum á ári og yfirleitt í formi einhverra afurða sem til urðu á bæjunum. Um páskaleytið á vorin voru egg mjög eftirsóknarverð því þá voru hænurnar nýbyrjaðar að verpa á ný eftir vetrarhléð sem móðir náttúra sér þeim fyrir.
Bjartar, skærar og fallegar varir í sumar
7 april 2012 - Heiða Þórðar


Þetta verður töff fyrir sumar gellur, ég veit það. Sjálf er ég föst í vananum, tek glossið á þetta flesta daga eða léttan nude eða bleikan. Aldrei skæran, hvað þá rauðan.
Aðalmálið í vor munu vera skærir coral litir og bjartir í bland við dekkri liti í ýmsum litartónum. Allt annað en ljósar fölar varir mun vera málið. Bara bíta á jaxlinn og láta sig hafa það. Skilst á öllu og öllum að það takið stuttan tíma að venjast dekkri vörum...
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-






