logo

Lísa Björk Ingólfsdóttir

Pistlahöfundur

Lesa um höfund

Framhaldssagan 8. hluti

 
Tryggvi sat rólegur í sófanum og fór yfir pappírsbunkann sem ég hafði látið hann fá. Ég sat við hlið hans með fæturnar undir mér og sötraði rauðvínið. Lengi vel sagði hann ekki orð, bara blaðaði í gegnum pappírana.
 

Komaso! Stöndum saman

Þetta er ekki skemmtipistill en það er undir okkur komið sem þjóð hvort hann muni reynast gagnlegur. Sjáum til.
 
Það eru 200 fjölskyldur sem bíða eftir að fá hamarinn í höfuðið. Hamarinn sem tekur af þeim heimili sitt. Þessar fjölskyldur eiga það sameiginlegt að hafa leitað til Umboðsmanns skuldara vegna greiðsluerfiðleika í kjölfar bankahrunsins.
 

Hjálpum öðrum en úthúðum ekki

Um daginn las ég pistil eftir framkvæmdastjóra fyrirtækis þess efnis að vér Íslendingar ættum að hætta að væla þar sem við hefðum aldrei þurft að kúka í plastpoka líkt og fólk í þriðjaheimsríkjum.
 
Eða drekka skólpvatn.

Þú ert frábær!

Já, ég er að tala við þig. Ykkur öll. Galdurinn er bara að átta sig á því. Það er sko langerfiðasta skrefið sem nokkur manneskja tekur í lífinu. Að sættast við sjálfa sig eins og maður er og hætta að hlusta á raddir sem segja að maður sé að einhverju leyti vonlaus.

Framhaldssagan 7. hluti

 
Ég hrökk upp af svefninum rennandi blaut af svita. Settist upp í rúminu og tók um höfuðið. Tryggvi svaf vært og bros lék um varir hans. Kvöldið hafði verið unaðslegt, engu líkt.

Framhaldssagan 6. hluti


Þegar ég var komin í Hvalfjarðargöngin reyndi ég að taka yfirvegaða ákvörðun. Ég myndi fara heim og reyna að ýta þessu öllu í burt frá mér. Seinna, þegar ég væri búin að jafna mig mundi ég ef til vill segja Tryggva alla söguna. En þrátt fyrir alla ástina milli okkar Tryggva þá var ég ekki viss um að hann mundi skilja það sem ég hafði upplifað undanfarna daga. 

Framhaldssagan 5. hluti

 
Ég harkaði af mér. Þetta var gömul ljósmynd og hafði ekkert með mig að gera. En hverjir voru þetta? Þegar ég leit upp aftur með tárvotum augum sá ég gömlu fallegu augun hennar Marínar hvíla á mér. Gamla röddin titraði milli þess sem hún reyndi að draga andann.

Framhaldssagan 4. hluti


Ég sat við hlið gömlu konunnar. Hún var andstutt og átti greinilega erfitt með að ná andanum á stundum. Ég virti hana fyrir mér þar sem hún lá þarna með lokuð augun. Reyndi að ímynda mér hvernig hún hefði litið út þegar hún var yngri. Svona fyrir utan þessi sérkennilegu bláu augu.

Framhaldssagan 3. hluti

Hér má sjá annan hluta og þaðan þann fyrsta.

Þorláksmessan var yndisleg. Ég vaknaði snemma, setti jólalögin í geislaspilarann og var búin að ná í afganginn af jólaskreytingunum og laga kaffi þegar Tryggvi kom grútsyfjaður fram. Hann var fljótur að sættast á að ná í drengina sína og uppfylla það loforð sem við höfðum gefið þeim. Strax fyrir hádegið var heimilið uppfullt af gleði og spenningi stráksanna, sem þyrluðust um allt hús til að ganga frá síðustu skreytingunum áður en við færum í bæinn til að klára jólagjafainnkaupin.

Mömmur eru ekki allar eins

Reyndar eru engar tvær manneskjur alveg eins. Þess vegna er það fullkomlega eðlilegt að mömmur séu „allskonar“. Það er engin ein tegund af mömmu.

Framhaldssagan 2. hluti

 
Ég starði á snjáða bókina í höndum mér. Það var virkilega engin vitglóra í þessu. Tímasetningarnar pössuðu við aldur Marínar gömlu, en ég hafði aldrei heyrt nafn systur hennar eða systursonar. Eitthvað hafði hún verið yngri en Marín, það gat alveg stemmt. En konan frá kvöldinu áður var örugglega ekki meira en að nálgast fertugsaldurinn. 

Framhaldssagan 1. hluti

Hríðin var orðin að blindbyl. Hefði mig grunað að Hvalfjarðargöngin væru lokuð er óvíst að ég hefði lagt af stað í bæinn. En ég hafði lofað Tryggva og börnunum að vera með þeim að undirbúa jólahátíðina. Ég vissi að þau biðu eftir mér.

Er svo þakklát

Sumir segja að tíminn sé peningar. En tíminn er líka gjöf. Gjöf til þín og okkar allra. Stundum finnst mér ekkert yndislegra en að sitja í algjörum rólegheitum og velta fyrir mér lífinu. Rifja upp allt það góða sem mér hefur verið gefið.
 

Stjúpmóðirin fékk reisupassann

Stundum þegar maður situr á læknastofu eða hvar sem maður þarf að bíða, ergir maður sig á því að eina lesefnið séu blöð um golf, sjávarútveginn eða eitthvað álíka skemmtilegt. Öll íslensku slúðurblöðin sem gera lítið annað en að stytta manni stundir á svona stöðum, virðast hverfa. En á flestum stöðum má finna eitt og eitt eldgamalt danskt tímarit.

Krabbameinið og unglingurinn

Elsku besta amma
 
Einu sinni átti ég bestu ömmu í heimi. Á hana auðvitað ennþá, en í hjartanu núna. Amma mín sá um mig meira og minna því mamma var oft veik. Hún bjó á neðri hæðinni og hafði nánast alltaf tíma fyrir mig. Held hún hafi verið búin að lesa fyrir mig allar ástarsögurnar eftir Theresu Charles og álíka höfunda fyrir sjö ára aldurinn. Kannski er ég þess vegna svona ári rómantísk.

Gríman 6. hluti

Að slíta sig lausa frá siðblindum
 
Margar konur sem eru í sambandi með siðblindum einstaklingi vita að þær eru að fást við mjög sjúkan einstakling. En þar sem sjálfsöryggið er brotið og skynjun á raunveruleikanum brengluð, þá halda þær samt áfram sambandinu.
 

Voruð þið að reyna að drepa mig?

Það var fallegur sumardagur í Californiu. Ég ásamt systur minni og vinkonu hennar vorum á leið í sjóskíðaútilegu. Á leið minni vestur um haf hafði ég kynnst jafnaldra mínum sem var á leiðinni í skóla þarna úti. Ákvað að bjóða honum með. Eiginmenn hinna tveggja ætluðu að koma daginn eftir. Við tókum með okkur annan bátinn en þeir ætluðu svo að koma með hinn.

Er Séð og heyrt upplýsingarit um skilnaði?

Hérna einu sinni allavega voru brúðkaupstilkynningar í Morgunblaðinu. Bara ósköp lítið og sætt. Mynd af brúðhjónunum, hvað þau heita, hver gaf þau saman og þess háttar. Þar voru aldrei skilnaðartilkynningar.

Og jörðin skelfur

Nei nei – ekkert erótískt, því miður. Var bara að detta niður á jarðskjálftaumfjöllun á mbl.is þess eðlis að við ættum að huga að híbýlum okkar. Hillum, húsgögnum og svona dóti. Þeir gleymdu reyndar að minnast á að fólk ætti að koma sér í skjól frekar en að hlaupa beint á facebook. Now you know.

Hver getur hjálpað börnunum?

Foreldrum meinað að fara eftir Barnalögum
 
Veit að þetta hljómar ótrúlega en svona er það nú samt. Það sem verra er, það getur kostað foreldrið allt að 30 þúsund á dag að vernda barn sitt samkvæmt 28.gr barnalaga.
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur