Sykursætur sumarskrúbbur
1 maí 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Sykur er betra val en salt í andlitsskrúbba, hann rífur ekki eins í skinnið. Þegar dauðar húðfrumur safnast á yfirborði húðarinnar, er mikilvægt að skófla þeim í burtu. Það gerir ekkert nema gott, og opnar fyrir stíflur í leiðinni.
Náttborð og sófahorn
30 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Það sem ég hefði átt að segja næst
-þráhyggjusögur
Eftir Ingunni Snædal
(Bjartur 2011)
Gestaréttur
30 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Ömmur eru sko allra bestar með svuntuna. Þessum herlegheitum var vippað fram í snarhasti ef von var á gestum í kaffi. Þær kalla nú ekki allt ömmu sína heldur. Elskarðu aspas og ost? Lestu meira!
C vítamín bombur
29 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Hver vill ekki vita allt um C vítamín í kroppinn? Hér eru nokkrar algjörar C vítamín bombur sem vilja hendast ofan í körfuna í næstu búðarferð. Jafnvel appelsínan stenst þeim ekki snúning þessum. Myndaþáttur gjössovel...
Kjúklingur í engifer
27 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Það er aldrei til nóg af hugmyndum um kjúkling. Endalaust hægt að tjútta við kauða, bæði á pönnu og í ofni. Það er ekki verra að hafa stundum bragðið pínu framandi...við eigum það til að festa okkur í viðjum vanans sumar. Ekki ég...nei, alls ekki ég. Datt þér það í hug? Hvaða vitleysa, hér er rjómafín hugmynd handa þér frá mér.
Ólífuolía...mögnuð!
26 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Ólífuolía er til margra hluta nytsamleg, svona þegar salatinu og pönnunni sleppir. Ekki samt nota dýru týpuna í þetta grúsk. Geymdu hana vel í eldhúsinu. Þessi ódýra, sett á spreybrúsa...hún má fara í til dæmis þetta:
Brauðterta frá Mexíkó
26 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Þið vitið mætavel hversu heit ég er fyrir Mexíkó, margoft komið fram. Svo á ég leið um litla eyju norður í ballarhafi og þar í heimahúsi rekst ég á matreiðslubók fyrir börn með þessari líka girnilegu brauðtertu...sem talar reiprennandi mexíkönsku!
Silki
26 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Eftir Alessandro Baricco
(1997)
Mál og Menning 1999
Á náttborðinu liggur lítil en risastór bók. Ég les hana á ensku en höfundur er fæddur á Ítalíu, árið 1958. Alessandro Baricco fer mjúkum og dularfullum höndum um ást og þrá og ástarþrá. Ef einhvern tíma fegurð á blaðsíðum bókar, kallar á tár. Þá er það milli einmitt þessara spjalda.
Hugarlundur
25 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Hann er pínulítið skot sem ég á mér fyrir mig. Þangað seilist ég stundum og sæki hitt og þetta. Aðallega bæði. Í lundinum er orðasúpa, tilfinningar og takmörk. Lundurinn er gróðursæll, þar er lúxus að lúra. Töff að tjútta. Og allt þar á milli.
Unglingur
25 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Ég á ungling. Og tvo í viðbót upprennandi. Mín bíða fleiri herbergi með óflokkuðum g-strengjum og fötum í kuðli í skápum og skúffum, oft á gólfi. Ég mun þurfa að horfa framhjá varalit kysstum á spegil og svörtum tússpenna sem myndar nafn á herramanni á hvítri ruslafötu. Ég mun um ókomin ár þurfa að fela make-up sem ég vil ekki að verði misþyrmt og geyma sparinærföt á óvísum stað; kannski aftast í frystinum.
Elsku dóttir
24 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Þegar þú fæddist stöðvaðist tíminn um stund. Ekkert hélt áfram nema tár mín þér til heiðurs. Og nú ertu eldri, þið eruð þrjár. Mitt hlutverk í okkar lífi saman, er að leiðbeina og kenna, styðja og elska. Gegnum súrt og sætt, alla leið. Það er mér heiður; mikilvægasta verkefnið sem mér hefur verið falið. Ég verð að vanda mig.
Gerðu það sjálf
24 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Eigum við að gera það elskan mín, sagði vinkona mín við manninn sinn. Þau voru í sumarfríi. Og hann var þreyttur...
Geturðu ekki bara gert það sjálf ástin?
Mamman deyr
23 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Það er sjaldan sem ég horfi á sjónvarp. Helst ef ég er beðin af litlum stúlkum, um að vera með þeim í sófanum eina kvöldstund. Ef annars, þá er einhver mynd sem ég verð að sjá. Þetta kvöld er fyrra tilfellið; ég var beðin um að skríða í miðjuna. Undir teppi.
Aldrei verið kysst
22 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Hún er ung. Með sítt dökkt hár og brún augu. Lögulega grannvaxin með þykkar varir. Hún hefur aldrei verið kysst.
Það er rigning og eftir langa gönguna frá strætisvagnastöð, er hárið mígandi blautt og liggur klesst við ennið og fram á kinnbein. Það er logn. Hún er með tösku á öxlinni og tvo poka úr búðinni. Allt skipulagt. Nema regnið.
Guacamole andoxun með bragði
22 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Þessi mexíkanska sósa er stútfull af hollustu, bara þar sem grunnávöxturinn er...græna gumsið er hlaðið andoxunarefnum og hefur fengið viðurnefnið super food.
Ávöxturinn er líka mjög góður í samspili við annað; út á salöt til dæmis. En ég ætlaði að tala um guacamole...
Under the Tuscan sun
22 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Mynd frá árinu 2003
Diane Lane, Sandra Oh, Lindsay Duncan, Raoul Bova.
Yndislega falleg mynd, enda hvað annað hægt? Ítalía í öllu sínu veldi! Um það að finna sjálfa sig eftir skilnað.
Dansaðu
21 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Ef þú takmarkar líf þitt við það sem virðist mögulegt eða raunhæft, ertu þá að fara á eftir því sem þú virkilega vilt? Eða er líf þitt eintóm málamiðlun? Sestu niður, við skulum skoða málið...
Kaka á tíu mínútum
21 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Af hverju gerir fólk manni þetta? Ég rakst inn á vefsíðu hjá einum snillingnum...sem er kona, svo þú vitir það. Og fann þetta hér. Sjúklegt alveg.
Vonbrigði
20 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Ég vona og legg það í vana minn. Alla daga. Alveg sama hvað. Ég vona að dagurinn verði okkur góður og ekkert bregði útaf sem alvarlegt megi þykja. Ég vona að ömmu minni líði sæmilega; orðin svona gömul og léleg. Ég vona að það rætist úr börnunum mínum og hamingjan hitti þau á göngunni. Ég vona að mér takist að sinna því sem mér ber.
Anis og engifer kjúklingur
18 april 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Hér er skemmtileg tilbreyting í eldhúsið þitt. Þú sem ert með kjúkling á borðum oft í viku eins og ég. Þetta er málið...
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-






