Kroppurinn
Leghálsskoðun -einföld en mikilvæg
22 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Leghálsskoðun er einföld rannsókn en mjög mikilvæg sem heilsuvernd. Því vill Leitarstöð Krabbameinsfélagsins, minna þig á að koma reglulega til leghálsskoðunar.
Brúnka í skammdeginu
21 febrúar 2012 - Petra Sif Jóhannsdóttir


Hver kannast ekki við hvíta, föla húð á þessum tíma ársins? Það eru margir sem vilja fríska upp á útlitið með brúnkusprautun eða brúnkukremi.
Hvað er það sem þarf að gera til þess að fá flotta og jafna brúnku ?
Heilsuboðorðin tíu
21 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Heilsan eins og allir vita er afar dýrmæt. Hér á eftir fara heilsuboðorðin tíu, samkvæmt Krabbameinsfélaginu.
1. Reykjum ekki og forðumst reyk frá öðrum. Notum hvorki nef- eða munntóbak.
2. Takmörkum neyslu áfengra drykkja.
Veirur valda krabbameini í leghálsi
20 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Bólusetning ein og sér er ekki nægjanleg vörn.
Laghálskrabbameinsleit
Með frumustroki frá leghálsi er unnt að greina leghálskrabbamein á forstigi eða á algeru byrjunarstigi. Leitaraðferðin er notuð í mörgum löndum. Leghálskrabbameinsleit hófst hér á landi árið 1964. Leitin beinist nú að konum á aldrinum 20-69 ára og eru þær boðaðar til skoðunar á tveggja til fjögurra ára fresti eftir aldri og fyrri leitarsögu.
Sítrónumaski fyrir feita húð
16 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Dekrum við okkur í grænu og gulu. Hérna birtum við hrikalega góðan maska, sem jafnframt er heilsusamlegur, og svo girnilegur að þig langar sem helst til að borð'ann!
Skvettu þessu í trýnið á þér ....og éttu rest!
Varasalvi sem virkar á frunsur!
14 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Okkur finnst ótrúlega gaman að fá reynslusögur frá ykkur. Sérstaklega þegar verið er að hæla vörum og/eða þjónustu, í víðum skilningi. Magga Hrönn er búsett í Sandgerði og býr til allskyns krem og smyrsl, að auki skrúbba og margt fleira. Hún notar aðeins náttúruleg hráefni og hefur fengið mikið lof fyrir virkni krema sinna. Fyrir stuttu barst okkur bréf. Viðkomandi hafði þjáðst af þrálátu exemi, en fékk mein bóta sinna með kremi frá Möggu Hrönn. Hér má lesa greinina.
Gleðilegan mánudag
13 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Ég á litla bók sem hefur að geyma allskyns ljóð, bænir og hugleiðingar. Fyrir löngu síðan skrifaði ég inn í þessa bók lítið ljóð.Því miður man ég ekki hvaðan ég fékk ljóðið og er höfundur mér því ókunnur.
Sagan segir að bandaríski fótboltaþjálfarinn Paul Bryant hafi alltaf gengið með þessa bæn á sér. Flott íhugun í upphafi dags. Í upphafi splunkunýrrar viku.
Sexý og seiðandi safar
9 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir

Við elskum allar allt sem gerir útlit okkar betra. Hvort sem um ræðir dýrindis krem sem á að segja bless við appelsínuhúð og stinna okkur eða safar sem yngja okkur allar upp, bæði að innan sem að utan.
Neglur og sjúkdómar
9 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Merkilegt nokkuð, neglurnar á fingrunum geta sagt heilmikið til um heilsufarsástand þitt. Taktu þér tíma og virtu fyrir þér neglurnar. Þú átt jafnvel að geta greint merki um hugsanlega yfirvofandi sjúkdóma.
Sportstöðin Selfossi
6 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir
Ég hef lengi verið fastagestur og eilífðaráskrifandi hjá World Class. Ekki leiðinlegt það. Hins vegar flutti ég, ásamt eiginmanni og börnum út á land við upphaf árs. Mikill aðskilnaðarkvíði átti sér stað á milli mín og World Class. Ég sagði upp áskriftinni með miklum trega og nánast með tárin í augunum. Hvar ætti ég að komast í alla hreyfingarflóruna úti á landi sem gæti hugsanlega staðist samanburð við World Class?
Áræðni skilar ávallt sínu
5 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir
Það er mikilvægt að vera vakandi í lífinu fyrir árangri fólks í kringum sig. Það er bæði hvetjandi og oft á tíðum vakning fyrir marga, að efla naflaskoðunina sem maður stundar nokkrum sinnum í gegnum lífsleiðina.
Use it or loose it!
4 febrúar 2012 - Ester Júlía

Lyftu lóðum og láttu vöðvana hjálpa þér að „brenna“ óæskilegri fitu allan sólahringinn!
Geislaðu af hreysti -þrátt fyrir lítinn svefn
3 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Það er fátt verra en að vakna daginn eftir svefnlitla nótt. Við upplifum okkur þrútin, eiginlega algjört "mess" bara. Það eru til nokkur ráð við því eins og öðru.
Það er að segja, með réttri förðun. Þessi "trix", eiga að gera það að verkum að við lítum út fyrir að hafa fengið dásamlegan átta klukkustunda svefn.
Gott kynlíf -betra útlit!
31 janúar 2012 - Heiða Þórðar


Við konur eyðum flestar fleiri þúsundum króna í allskyns krem, snyrtivörur og fatnað til að líta betur út.
Heilbrigt kynlíf með þeim sem þú elskar gerir samt stórt kraftaverk. Móðir Náttúra sér um að gefa konum glóandi og yngra útlit, með kynlífi sem að sama skapi eykur blóðflæði og veitir aukna hamingju.
Vatn er ekki bara vatn -fjölmargir möguleikar!
29 janúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir
Sú næring sem við þurfum mest að mínu mati er vatn. Þessi drykkur sem rennur áreynslulaust út um kranann heima hjá okkur öllum er lífsnauðsynlegt næringarefni. Við getum lifað mun lengur án matar en vatns. Það er staðreynd. Jafnvel þótt það sé ekki næringarefni sem slíkt.
High intensity interval training
28 janúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir
Þegar kemur að nýjungum er ég sú fyrsta til að forvitnast. Ég leita eftir upplýsingum úr öllum áttum og því fleiri áttir sem þær berast frá því betri vitneskju öðlast ég.
27 misheppnaðar fegrunaraðgerðir
28 janúar 2012 - Heiða Þórðar


Sitt sýnist hverjum um fegrunaraðgerðir og útlitsdýrkun almennt. En því er ekki hægt að neita að lýtaaðgerðir takast misvel eins og dæmin sýna. Að auki virðast sumir ekki kunna að gæta hófs í þessum efnum. Fara ekki bara alla leið með þetta, heldur langtum lengra og eiginlega lengra en það.
Jarðaber við þvagstemmu
26 janúar 2012 - Heiða Þórðar


Jarðarber eru ekki bara bragðgóð, þau eru mjög næringarrík. Sem dæmi þá er meira af C-vítamíni í átta jarðarberjum en í einni appelsínu.
Eða um 140% af ráðlögðum daglegum skammti af C-vítamíni.
Blómstrandi kynhvöt
25 janúar 2012 - Heiða Þórðar


Með réttu mataræði getum við aukið úthald okkar og löngun í kynlíf. Það er alveg hreint ótrúlegt hvað matur er áhrifaríkur þáttur í lífi okkar, bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt. Hér á eftir fara nokkrar fæðutegundir sem auka kynlöngun, -getu og úthald.
En þú vissir þetta nú, eða hvað?
Hörfræ gegn krabbameini?
25 janúar 2012 - Heiða Þórðar


Frá því um 1950 hefur verið talað um hörfræ sem fæðu er gæti fyrirbyggt eða unnið á krabbameini. Fræin er hægt að fá sem malað korn, fínt mjöl og heil fræ.
Hörfræ er að finna í sumu fjölkornabrauði, morgunkorni, næringarstöngum og jafnvel í kökum og kexi.
Ástin er gildra. Þegar hún birtist sjáum við aðeins ljósið, ekki skuggana.- Paulo Coelho





