logo

Menning

Að elska það sem er

10 mars 2012

Vegna fjölda fyrirspurna hefur bókin Að elska það sem er – Fjórar spurningar sem geta skipt sköpum eftir Byron Katie verið endurútgefin hjá bókaútgáfunni Sölku.

Léttir -dagbók um megrun og mataræði

8 mars 2012 - Heiða Þórðar

Léttir eftir Jónínu Leósdóttur kom út nú nýverið í kilju. Bókin er hugleiðing harmónikkukonu, öllu heldur dagbók Jónínu sem spannar yfir heilt ár.
 
Hún segir frá aðferðum þeim sem hún beitti til að ná sínum stórkostlega árangri, en Jónina losaði sig við tuttugu kíló, með skynsömum hætti. 

Gourmand World Cookbook Awards 2011

8 mars 2012

Stóra bókin um villibráð, bók Úlfars Finnbjörnssonar, er í flokki Bestu matreiðslubóka heims árið 2011 í hinum virtu Gourmand-verðlaunum.
 
 
Ein af bestu matreiðslubókum heims!

Guðbjörg Elísa er stórkostleg íslensk söngkona!

3 mars 2012 - Heiða Þórðar

Guðbjörg Elísa Hafsteinsdóttir ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur.
 
Hér tekur hún söng eftir sjálfa drottninguna Whitney Houston sálugu. Og gerir það svo vel, að ég er með gæsahúð sem staðið hefur yfir síðan ég heyrði í henni fyrst, þessari elsku. Hlustaðu og njóttu. 
 
Mögnuð þessi stelpa!

Viltu giftast mér?

29 febrúar 2012 - Svala Jónsdóttir

Í dag er hlaupársdagur, 29. febrúar. Þetta er víst eini dagurinn þar sem konur mega biðja sér manns, samkvæmt gömlum hefðum. Sem sagt, konur mega aðeins eiga frumkvæðið að hjónabandi einu sinni á um það bil fjögurra ára fresti. Móðir mín er nokkuð dugleg að benda mér á það þessa dagana. En það er líka hægt að nota daginn til þess að hagnast, þó að enginn finnist eiginmaðurinn!
 

Frægasta breska vændiskonan

28 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Christina Keeler hlýtur þann vafasama heiður að vera ókrýnd; frægasta enska fylgikonan.
 
Christine fæddist árið 1942 og var aðalpersónan í svokölluðu Profumo-hneyksli.

Fyndið prakkarastrik - myndband

27 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Rakst á þetta hrikalega fyndna myndband. Áhorfið telur á mörgum trilljónum, enda afburða fyndið. Trúi ekki öðru en að þú náir að brosa út í annað....ef ekki bæði:

Hverjir fá Óskarinn?

26 febrúar 2012 - Svala Jónsdóttir

Óskarsverðlaunin eftirsóttu verða afhent í kvöld. Sumir horfa aðallega á Óskarinn til þess að sjá fræga fólkið, kjólana og skartið, en þegar upp er staðið eru það samt verðlaunin sjálf sem skipta mestu máli. Eins og alltaf er mesta spennan í kringum það hvaða kvikmynd fær verðlaun sem besta myndin, hvaða leikstjóri telst hafa skarað framúr og hvaða leikarar og leikkonur hafa staðið sig best í sínum hlutverkum.

Ástarjátning á hvíta tjaldinu

23 febrúar 2012 - Svala Jónsdóttir

Munaðarleysinginn Hugo, sem býr á lestarstöð í París á fjórða tug síðustu aldar, er aðalsöguhetjan í samnefndri kvikmynd eftir Martin Scorsese. Hann sér um að klukkur stöðvarinnar gangi rétt og auk þess reynir hann að gera við dularfullt vélmenni, sem faðir hans lét honum eftir. En þegar hann kynnist skapstirðum verslunareiganda og stelpu sem elskar ævintýri, fara hlutirnar að gerast fyrir alvöru.
 

Furðulegustu störf í heimi

22 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Ertu óánægð/ur í vinnunni? Ertu óánægð/ur með eitthvað annað? Punkturinn með þessu er, að oft er óánægjan í garð vinnustaðarins manns eigið hugarástand. Nema kannski eru allir vinnufélagarnir með tölu grútleiðinlegir. Skítalaun. 
 
Sjaldnast held ég að það sé raunin. Ef þú hyggur á frekari frama, vertu þakklát/ur fyrir það sem þú átt og hefur nú. Starfið þitt.

Gleðilegan öskudag

22 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Öskudagur er upphafsdagur lönguföstu, miðvikudagurinn í 7. viku fyrir páska. Dagsetning hans getur sveiflast á milli 4. febrúar til 10. mars, sem segir okkur að öskudagurinn í ár (5. mars 2003) er seint á ferðinni. Öskudagur hefur lengi verið mikilvægur í katólska kirkjuárinu og nafn hans er dregið af því að þá er sums staðar ösku dreift yfir höfuð kirkjugesta, og til þess notaður jafnvel sérstakur vöndur.

Mona með súkkulaði

17 febrúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Á Spáni er ekki hefð fyrir páskaeggjum úr súkkulaði. Né nokkur einasti bolludagur eins og við þekkjum hann. Þess í stað borða Spánverjar sætt brauð sem kallast mona og bíta í súkkulaðistykki með. 

Valentínusardagurinn

11 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Valentínusardagurinn er dagur helgaður ástinni, haldinn á messudegi heilags Valentínusar 14. febrúar ár hvert. Dagurinn á uppruna sinn í Evrópu á 14. öld. Venjan er að gefa þeim heittelskaða/heittelskuðu gjafir á borð við blóm og konfekt og láta ástarjátningu fylgja með á þar til gerðu korti.

Mögnuð Norðurljós

11 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Axel Óskarsson áhugaljósmyndari og leiðsögumaður hjá Superjeep tók þessar mögnuðu myndir af norðurljósunum á dögunum.
 
Veðurskilyrðin voru óvenjuhagstæð þetta kvöld og himinn var heiður.  Í kringum miðnætti var dýrðin slík, að erlendir ferðamenn stóðu bókstaflega á öndinni!

Sirrý Jóns

Sirrý Jóns er tilbúin persóna í tengslum við sýninguna TÍZKA-KJÓLAR OG KORSELETT í Þjóðminjasafni Íslands.

Sylvía -íslensk myndlist

4 febrúar 2012 - Heiða Þórðar

Ég hef verið málandi frá því ég var smákrakki, myndlistin hefur alltaf verið mitt aðaláhugamál og ástríða. Verð alveg eirðarlaus og ómöguleg ef ég hef ekki málað í viku eða meira, þá er best að forðast mig, eða rétta mér pensil.
 
 

RetRoBot -nýtt íslenskt myndband

30 janúar 2012 - Heiða Þórðar

 
Hljómsveitina RetRoBot skipa þeir Daði, Pálmi, Mummi og Gunnlaugur. Á dögunum gáfu þeir út nýtt lag. Flott lag og hæfileikaríkir strákar sem vert verður að fylgjast með í framtíðinni.
 
Hægt er að hafa samband við strákana hérna til að bóka á viðburði og að sjálfsögðu að skoða nýútkomið efni  og fylgjast með hvað er framundan hjá þeim.

The Iron lady -kvikmyndahús

30 janúar 2012 - Heiða Þórðar

THE IRON LADY er sönn saga um Margaret Thatcher (Streep), en hún var fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra Bretlands. Hún er ein frægasta og áhrifamesta kona tuttugustu aldarinnar. Hún þurfti að brjóta niður margar hindranir til að hefja upp raust sína í karllægu stjórnmálaumhverfi.

Íslensk listaverk til leigu

29 janúar 2012 - Heiða Þórðar

Ég fór um síðastliðna helgi á uppáhalds djammrúntinn minn. Byrjaði á Listhúsinu og endaði á Borgarbókasafni Reykjavíkur.
 
En bókasafnið við Tryggvagötu er uppáhalds skemmtistaðurinn minn,  þrátt fyrir að kaffið þar geri ekki mikið fyrir mig. 

Kynlífsróbót eða alvöru?

27 janúar 2012 - Heiða Þórðar

-Ég er sko alveg búinn að gefast upp á þessum kerlingum!
Hér eftir verð ég einn. Alveg á hreinu! Sítuðandi og löðrandi í dramatík og kjaftæði þessar kerlingar.
Ok. Kannski verð ég ekki alveg einn; ég og Lóa Fimm-boga verðum eitt
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur