logo

Ráðabrugg

Baðsalt

Ég verð blönk næstum allan mánuðinn, það er útséð um það. Hefur svo sem gerst áður og ég læt það ekkert stoppa mig. Bara dunda mér við að búa til svona skemmtilegan lúxus sem kostar minna...því ég er dekurdrós stundum á kvöldin. Þú líka, ég veit.

Viltu sleik?

Langar okkur ekki í sleikjó? Eða bara búa til eitthvað í nammiskápinn ef ske kynni...? Nei, ég er ekki að biðja þig um að kyssa á mér tærnar...kíktu á þetta hér!

Hreinsaðu af þér farðann!

Ekki segja mér að þú hafir komið heim seint og farið beint í rúmið...tókstu ekki örugglega af þér farðann? Eða áttirðu kannski ekkert eftir til að hreinsa andlitið? Við deyjum ekki ráðalausar elskan. Hugsaðu vel um húðina. Hér er heimalagaður hreinsir handa þér.

Börn í baði

Jimundur minn hvað það er gaman í baði! Frábær hugmynd að skemmtilegu barnabaði og slakið á húsmæður og -feður...það má skola þetta burt á núllkommaeinni. Fáið ykkur kaffi á meðan bara.

Spáðu fyrir um ástina þína

28 mars 2012 - Heiða Þórðar

Einu sinni var ég norn. Ekki lengur, kann hvorki rass né sporð á hvaða gjafir framtíðin býður upp á. Hvorki mér né þér. Það er hin sanna fegurð í þessu öllu saman. En ég á bækur tengar fyrirbærinu, ég þarf að fara að losa mig við þær...
 
...nei hva? Þetta er gaman, sé ekki tekið fullt mark á þvælunni.

Hveitimaski

Látið ekki líða yfir ykkur, í guðanna bænum. Vissuð þið kannski að hveitið í þessum maska er frábært til að tóna húðina? Jafnar pH gildið...
 
Já ég veit, ég er að missa mig í möskunum. Komdu með bara.

Grænt te fyrir hárið

Jæja þá. Ég er mætt með enn eina hárnæringuna...heimatilbúna að sjálfsögðu. Áttu grænt te? Ekki? Farðu þá út í búð...lestu svo áfram.

Vintage fataskápur MYNDBAND

Þú ert pottþétt eins og ég, með hálfan fataskápinn af dóti sem þú hefur ekki notað svo mánuðum skiptir...nú er tíminn til að rífa fram larfana og endurvinna. Hanna sjálf og sauma pínu. Ég rakst á þessa snilldarstelpu á netinu, hörkuflott endurvinnsla á ferðinni.

Dræ Martíní eða Martíní Dræ

...það er spurningin. Segir vinkona mín frú Kvaran. Það er föstudagur stelpur, veriði nú svolítið menningarlegar þegar þið pantið drykkinn fyrir matinn.

Gulrætur og unaður

Ég er að tala um maukaðar gulrætur, engan dónaskap stelpur!
 
Þó að maður nýti sér nú athugasemdakerfið á fésbókinni sér í hag og ykkur hinum um leið. Ein vinkona mín setti hvorki meira né minna en heilan andlitsmaska í athugasemd. Og hér kemur hann í öllu sínu veldi. 

Bjór í hárið

Ertu að spá í að fá þér einn öl svona seinni part á laugardegi? Af hverju ekki að nota tækifærið og næra hárið í leiðinni? Kíktu á þetta.

Gúrkumaski

Ég hef óbilandi trú á agúrkunni. Jafnvel þó að meirihlutinn sé bara vatn. Þá er hún galdrakerling hún gúrka. Ég gróf upp maska sem inniheldur töfrana. Tékkaðu!

Súkkulaðibað...nammi namm

Hver vill ekki njóta þess að slaka á í baði? Og ekki hleypa gríslingunum inn á baðherbergið á meðan. Mamma á þessa stund fyrir sig! Það vill stundum brenna við hjá mér að allir þurfi að tala við mig, einmitt meðan ég ligg innan um kertin mín og ætla mér að tæma hugann. Bannað! Hér er hugmynd að mömmustund í bleyti...kíktu.

Súkkulaðimaski

Hvaða konur eru ekki veikar fyrir súkkulaði? Það er bara svo ljúffengt! En síðan kemur það upp á móti að það er ekkert sérlega hollt ef maður borðar það í óhófi. En súkkulaði er ekki bara gott í munninn heldur gerir það húðina silkimjúka, það er fullt af andoxunarefnum, rakagefandi og verndar húðina fyrir virkum stakeindum sem skemma húðina. Ég er auðvitað að tala um hreint súkkulaði, 70% eða kakóduft ekki mjólkursúkkulaði eða mars stykki...

Kartafla fyrir heilsu og útlit

Það má rekast á sitt lítið af hverju þegar maður gramsar á netinu. Ég í sakleysi mínu var að hugsa um kartöflur...eins og þær eru nú ljótar og venjulegar bara, og rakst á heljarinnar fróðleik um fyrirbærið. Punktaði hjá mér nokkur atriði sem vel gætu nýst þér. Mér er umhugað um að þú sért sæt og heilbrigð. Frábær listi.

Augnhár og krull

Ertu með þunn og bein augnhár? Og kannski í megnustu vandræðum með að krulla þau upp þegar þú vilt gera þig sætari en venjulega? Þessi stelpa hér vill meina að hún hafi reynt allar gerðir krullara og ekkert virki nógu vel...að krulluðu hárin séu orðin bein eftir nokkrar mínútur. Hér fann hún galdraráð að því er virðist. Fylgjumst með henni...

Skrúbbur úr súkkulaði

Ég lofaði því um daginn þegar ég talaði um hana Rósu mína og súkkulaðisýkina, að ég myndi láta ykkur klína þessu á húðina líka. Ég er rétt að byrja. Hér kemur andlitið útatað í girnilegu kakómauki...

Ertu þurr í framan?

Ég er með ráð við því. Svakalegan maska sem gefur húðinni start. Avókadó og eggjahvíta er frábær samsetning...viltu vita hvernig og af hverju? Lestu meira...

Glossið þitt

Ég nota aldrei varalit, ég er svona náttúrleg týpa...en oft með glansandi varir! Alltaf með gloss í veskinu, en stundum klárast það að sjálfsögðu. Ég hef aldrei reynt að búa til svona sjálfsagðan hlut, finnst það bara segja sig sjálft að ég versla þetta í búð. Allt er breytingum háð dömur mínar. Nú er mál að spara...

Hunang og banani -alvöru næring

Já, þið neyðist til að þola þetta brölt á mér með hárnæringar og annað sullumbull sem lagað er heimavið. Þessi hér hlýtur bara að vera jafngóð og hunangsnæringin frá því um daginn. Nema hér er banani með í liðinu, sem eins og allir vita er klikkaður ávöxtur með öllu. Þið þarna tilraunadýr, prófum þetta núna...ha?
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur