Sköpun
Juniform -NÝTT í Mars
7 mars 2012 - Heiða Þórðar


Hún heitir Birta og er Björnsdóttir. Daman hannar undir vörumerkinu Juniform, sem er í hennar eign. Ég er mikill aðdáandi hönnunar Birtu og hef fylgst með henni í gegnum árin. Hæfileikarík og hörkudugleg eins og afraksturinn sýnir. Kemur mér sífellt á óvart, sem er best.
Birta fer sínar eigin slóðir og fylgir greinilega eigin sannfæringu í hönnun sinni. Hugsanlega hefur það eitt fleytt henni langleiðina á þann stað sem hún er á í dag. Virtur hönnuður og mikilsmetinn.
Öðruvísi lýsing -fríkuð ljós
6 mars 2012 - Heiða Þórðar


Lýsing er gríðarlega mikilvæg til að skapa notalegt andrúmsloft. Lampar eru til á velflestum íslenskum heimilum, en þarf lampi að vera bara lampi?
Hér eru myndir af lömpum sem eru ekki eins og hinir hefðbundnu. En flottir eru þeir. Flottir og öðruvísi. Kíkjum út fyrir hinn týpíska "ramma" ...og á snilldarhönnun í boði hinna ýmsu hönnuða.
Versace eins og draumur
5 mars 2012 - Anna Birgis
Innblástur hönnuða hjá Versace fyrir vor og sumar 2012 er hafinn. Ofsalega falleg föt og mynstrin eru æðisleg. Smáatriðin á hverri flík eru slík að ég læt fylgja með nærmyndir af fallegum smáatriðum í hönnuninni.
Magnaðar ljósmyndir af brotnum styttum
5 mars 2012 - Heiða Þórðar


Í þetta verkefni sem kallast einfaldlega Porcelain Figurines, notaði ljósmyndarinn Martin Klimas allsérstaka aðferð, en hann henti niður styttum úr þriggja metra hæð og myndaði herlegheitin á hárréttu augnabliki.
Niðurstaðan er rosaleg, svo ekki sé meira sagt. Þess háttar myndir nást þó aðeins með sérstakri linsu.
Memo...manstu það?
4 mars 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Það getur verið vandasamt að muna allt sem þarf að gera yfir daginn stundum, skutlast hingað og þangað, sækja þetta og hitt. Muna tíma hér og fund þar. Korktöflur eru ekki mikið fyrir augað að mínu mati, og þá síður tússtafla, sjúskuð og með kámi eftir útstrokaða penna. Hér eru nokkrar skemmtilegar útfærslur sem fyrir handlagna er alls ekki erfitt að snara fram. Tékkaðu!
Bretti bækur vín og sulta
3 mars 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Ég á tengdason (tilvonandi kannski) sem vinnur í brettafabrikku. Og ég á urmulinn allan af alls konar bókum, bæði í eldhúsinu, stofunni, svefnherberginu og við vinnuborðið. Svo á ég flöskur af víni og sultukrukkur, sultuna gerði ég sjálf. Vínið er keypt af vínmangara. Ég er passlega skapandi í höndunum, finnst mest gaman að skrifa og elda. En fjandinn hafi það...ég hlýt að geta þetta! Sjáðu bara:
Just Cavalli
1 mars 2012 - Anna Birgis
Just Cavalli er undir merki frá Roberto Cavalli sjálfum. Ofsalega falleg föt og fylgihlutir.
Mig langar að sýna ykkur hvað Just Cavalli er að bjóða upp á fyrir sumarið 2012.
Klæddu upp vegg eða tvo
1 mars 2012 - Heiða Þórðar


Hefurðu velt því fyrir þér að klæða upp veggina á heimilinu?
Hérna má sjá flotta lausn til að "poppa" upp vegg eða tvo. Í fyrstu hélt ég að um væri að ræða gifs, en á myndunum má sjá nýtískulegt þrívíddar veggfóður, í mismunandi útfærslum.
Smart, svo ekki sé meira sagt.
Donna Karan og tribal
29 febrúar 2012 - Anna Birgis
Já hún Donna Karan fór með sína línu í allt aðra átt en margir. Hún er með ansi fallega fylgihluti og kjóla og allt er þetta í tribal stíl.
Breki Design -skartgripir sem engan svíkja
29 febrúar 2012 - Erla Björg Eyjólfsdóttir
Við elskum íslenska framleiðslu á Speglinum okkar. Mörg viðtöl hafa verið birt við vel þekkta og lítt þekkta íslenska frumkvöðla. Fólk sem fer sínar eigin leiðir í því að koma sínu hugarfóstri á færi. Mikið eigum við af flottum hönnuðum, hvort sem um ræðir fatnað eða skart.
Svart hvítt svart hvítt
27 febrúar 2012 - Anna Birgis
Það er þemað hjá Chanel í fylgihlutum. Ofsalega fallegar töskur og allar í svörtu og hvítu. Takið líka eftir eyrnalokkunum. Þeir minna mig á 60’s skartgripi. Og minna óneitanlega mikið á barmnæluna gömlu með konunni á sem allar frúr áttu hérna í denn.
Reimaðu skóna á öðruvísi hátt -myndband
26 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Ég man þá tíð þegar það var aðeins ein rétt leið til að reima skóna sína. Allt annað var rangt. Mikið vel fagna ég fjölbreytni í reima- "saumaskaps" og litadýrð sem er í boði í reimum nú til dags. Reimar eru ekki lengur bara reimar.
Það er vel hægt að vera hipp og kúl með skóreimumunum, einum saman.
Litaðu hænueggin -myndband
26 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Hefð er fyrir því á Íslandi að skreyta híbýlin fyrir páskahátíðina. Oft er minna er meira málið, ef ekki alltaf. Ein falleg skál á miðju borði með litríkum eggjum er fallegur boði um vor og il.
Galla galla galla...
24 febrúar 2012 - Anna Birgis
...buxur, pils, jakkar, stuttbuxur, smekkbuxur og vesti fyrir sumarið.
Einn bolur -tíu möguleikar -myndband
23 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Við eigum allar langerma bol, trúi ekki öðru. Tja, ekki frekar en ég trúði því að hægt væri að nota sama bolinn á tíu mismunandi vegu.
Kíkið á þessa snilldarstelpu:
Föndur fjósakonunnar
22 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Lára Björns er búsett á Fáskrúðsfirði og föndrar undir nafni: Föndur Fjósakonunnar. Ég rakst á hönnun hennar á Facebook og heillaðist. Hver og ein vara er persónuleg og engin nákvæmlega eins.

Ég geri fermingarbækur, sérstaklega fyrir hver og einn. Hver bók er hugsuð til að varðveita minningar barnsins á þessum stóra degi í lífi þess. Gestir rita nöfn sín í bókina og hægt er að líma inn minningar, myndir og kort svo eitthvað sé nefnt, segir Lára.
Vaskar úr náttúrulegu grjóti
19 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Vaskur þarf ekki endilega að vera bara vaskur. Vaskar koma í einhverjum stærðum og nokkrum gerðum. Hönnuðir, margir hverjir, kjósa nú að fara óhefðbundnar leiðir í leit sinni að efnivið í hönnun sína. Þar á meðal hönnun handlauga.
Það er ekkert því til fyrirstöðu að fá sér baðkar í stíl við handlaugina. Hugmyndafluginu ættu aldrei að vera nein takmörk sett. Hrikalega fallegir og flottir vaskar.
Falleg og hlýleg íbúð
9 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Þessi stórkostlega íbúð eða loft er staðsett í San Fransisco. Húsið sjálft hlaut verðlaun ekki alls fyrir löngu.
Innandyra má sjá hinar ýmsu viðartegundir, að auki múrsteina og önnur náttúruleg efni. Hugsað hefur verið fyrir staðsetningu allra ljósa í hverju rými ásamt öðrum smáatriðum, sem þó eru svo stór. Birtan utan frá flæðir inn um risavaxna glugga, hvort sem er frá þaki eða veggjum. Einfaldega stórfenglegt loft.
Náttúruna inn í hýbýlin?
6 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Já, því ekki að smella hluta af náttúrunni heim í stofu? Ég sit alla jafna undir 2ja metra háu pálmatré og sólblómi við vinnu mína. Þrátt fyrir að úti sé stórhríð, er alltaf sól og ylur í minni stofu. Ég er alveg heilluð yfir því hversu auðveldlega hægt er að búa til sinn eigin veruleika með sínum persónulega stíl, með hagkvæmum hætti.
Hér á eftir getur að líta hin ýmsu gólfefni/mottur unnar úr náttúrulegu grjóti og viði. Njótið vel.
Stórkostleg íbúð -í hvítu
5 febrúar 2012 - Heiða Þórðar


Þessi fallega íbúð er staðsett í Englandi. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er eigandinn sérstaklega hrifinn af hvítna litnum, eins og svo margir.
Stórkostleg útkoma, -ef þú spyrð mig.
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





