logo

Spjalliđ

Litabók til góđgerđa

6 september 2011 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Ung íslensk kona sem búsett er í Århus í Danmörku fór nýskeð af stað með áhugavert verkefni. Spegillinn kíkti í Litabók vol.1.

Ónáttúrulegur gjörningur!

5 september 2011

Gunnar Andri Sigtryggsson er fæddur og uppalinn í Keflavík. Gunnar starfaði hjá lögreglunni í yfir tuttugu ár og vegna starfa sinna býr hann klárlega yfir dýrmætri reynslu þegar kemur að samskiptum við fólk. Alls konar fólk á flestum sviðum þjóðlífsins.

Amika

4 september 2011 - Heiđa Ţórđar

Anna Mikaelsdóttir stendur að baki Amika hönnun, en hún er frá Seyðisfirði. Anna flutti á Suðurlandið árið 2002. Eftir árs viðkomu í Hveragerði flutti hún sig yfir á Selfoss og hefur verið búsett þar síðan. Hún er í sambúð og á 2 uppkomin börn og fullt af yndislegum barnabörnum.

Gullstelpan frá Suđurnesjum

4 september 2011 - Ásgerđur Jóh

Írena Líf Jónsdóttir er 16 ára Suðurnesjamær.
 
Síðasta laugardag synti hún yngst sundmanna/kvenna, svokallað Viðeyjarsund á sundbolnum einum fata. Alveg hreint frábært árangur og í raun einstakur ef mið er tekið af því að hún hóf sjósund fyrir aðeins ári síðan.
 

Konan er í einu orđi scary...

3 september 2011

Þórleifur (Ugluspegill) Ásgeirsson er 52 ára tölvufræðingur og tölvukennari. Ef þú ert að leita að sambærilegu eintaki, hættu. Þú finnur aldrei annan Ugluspegil. Hann safnar hljóðfærum, myndavélum, bókum og ýmsu öðru misjafnlega þörfu dóti en aldrei drasli.

Ef ég er međ módel međ mér

2 september 2011

Bragi Kort er 48 ára gamall gaflari og á ættir sínar að rekja til kassahúsafjölskyldunnar. Amma Braga (Herdís Guðmundsdóttir) var ,,atvinnu" ljósmyndari í Hafnarfirði á sínum tíma og tók meira að segja myndir fyrir lögregluna. Afi Braga (Guðbjartur Ásgeirsson) var líka á kafi í ljósmyndun. Ef þú gengur eftir sjávarsíðunni í Hafnarfirði, má sjá þar myndir eftir afann á spjöldum sem sýna Hafnarfjörð í kringum miðja síðustu öld.

Ríđa, pissa, borđa og sofa!

1 september 2011

Eyrún (Crayzyfox) Gísladóttir kemur frá Akureyri en er búsett í Reykjavík ásamt unnusta sínum. Við rétt náðum í rassinn á henni til að svara nokkrum spurningum. Ég hef aldrei séð hana öðruvísi en á „fullu“, en hún starfar sem yfirþjónn á Silfur.
 
Gaman er að geta þess að Eyrún vann til fyrstu verðlauna í Finlandia-vodka keppninni sem haldin var í febrúar síðastliðnum.

Spiral

31 ágúst 2011 - Heiđa Ţórđar

Spiral hönnun var formlega stofnuð 6. maí árið 2010 af tveimur dömum frá Suðurnesjum, þeim Ingunni E. Yngvadóttur og Írisi Jónsdóttur, en þær eru æskuvinkonur. Um er að ræða mjög fallega og fjölbreytta hönnun á flíkum, sem henta konum á öllum aldri.

Angelina Jolie

29 ágúst 2011

Birgir Sævarsson er ungur og sívaxandi tónlistarmaður. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann samt sem áður komið fram með helstu listamönnum Íslands og spilað á mörgum af stærstu hátíðum og tónleikum landsins síðustu ár. Að auki er hann umboðsmaður og skipuleggur tónleika. Hann er Húsvíkingur sem býr í Reykjavík.

Karlmenn eru betri...međ allskyns tól og tćki

28 ágúst 2011

Anna Birgis er sjálfstætt starfandi og dúx úr skóla lífsins. Þessi flotta, lífsglaða, sterka og skelegga kona er nýorðin amma.
 
Anna fæddist undir stjörnu nautsins og sem slík er hún harðdugleg og áreiðanleg.
 
Framkvæmdarglaður nautnabelgur. Jafnframt skynsöm og trygglynd en þrjósk.
 

Sophia Loren fallegust kvenna

28 ágúst 2011

Jóhann Kristinn Rafnsson er fæddur 29 águst 1960 og verður því 51 árs á þessu ári. Hann starfar sem verkstjóri hjá Steypustöðinni Borg í Hafnarfirði, er fráskilinn og á 4 börn með þremur konum.

Nokkuð venjulegur íslenskur karlmaður sem segist njóta þess að vera til.

Grátandi á fjallstindi

27 ágúst 2011 - Heiđa Ţórđar

Ellert Grétarsson (elg) er 47 ára gamall Keflvíkingur og einstæður tveggja barna faðir, búsettur í Reykjanesbæ . Hann hefur vakið athygli fyrir magnaðar ljósmyndir sínar af íslensku landslagi og náttúru en Ellert, eða Elli eins og hann er kallaður, hefur ferðast fótgangandi víða um land undanfarin ár með myndavélina um hálsinn.

Jóhanna Sigurđardóttir er frábćr fyrirmynd kvenna

27 ágúst 2011

Jón Halldór Borgarson býr í Reykjanesbæ og er í sambúð með einni af fallegustu og leggjalengstu ljóskunum sem þaðan koma. Uppáhaldstilvitnun hans er einfaldlega „þú ert mella“ samkvæmt facebook síðu hans. Staðreyndin er hins vegar sú að gæinn er algjör krúttbomba og virkilega fallegur undir mottunni, „tanaða“ skinninu og svarta húmornum...sem er löðrandi yfir hann og allt um kring.

Heimatilbúnar bađvörur

Sigurbjörg er 29 ára Akureyrarmær sem býr til sápur og baðsölt í eldhúsinu heima hjá sér.
 
Spegillinn átti við þessa ilmandi konu stutt spjall um löður og lyktarefni. Freyðandi lúxus.

Ekki Jóhanna Sigurđardóttir...

26 ágúst 2011

Eins og kunnugt er orðið gengur Spegillinn milli karlmanna og spyr þá spjörunum úr varðandi konuna og konur yfirhöfuð.
 
Alltaf gaman að vita hvað strákarnir hafa að segja um okkur.

Fordómar í samfélaginu

26 ágúst 2011 - Heiđa Ţórđar

Ég tók fyrst eftir Sigþrúði Þorfinnsdóttur eða Dúu, eins og hún er kölluð meðal vina, á „moggablogginu“, fyrir nokkrum árum. Í pistlum sem hún birti á bloggsvæði sínu var hún hárbeitt. Með húmorinn að vopni setti hún fram skoðanir sínar á hispurslausan hátt. Ég fór að fylgjast betur með henni. Hún náði til mín.

Klók og vafđi körlum um fingur sér

25 ágúst 2011

Þórarinn Þórarinsson er fertugur, einhleypur fjögurra barna faðir. Hann vinnur sem blaðamaður fyrir meðlögum og helstu lífsnauðsynjum; sígarettum, bókum, hamborgurum, pizzum, Kóki og Prins Póló. Hann var lengst af á Fréttablaðinu en skrifar nú í Fréttatímann eftir að hafa meðal annars ritstýrt Mannlífi og verið fréttastjóri á DV.

Handverk Ebbu

Ebba Arngrímsdóttir er fædd og uppalin í Hafnarfirði og bjó þar allt til ársins 1991 en flutti þá í Garðabæinn. Hún býr rétt við hraunið og lækinn sem rennur neðan við bæinn; einstaklega friðsælt og alveg dásamlegt að búa. Óspillt náttúran með alla sína fegurð og liti er sannkölluð uppspretta hugmynda.

Veran KONA er fallegt listaverk

24 ágúst 2011

Hemma okkar allra Gunn þarf vart að kynna. Við ritstýrur á Speglinum elskum hann og trúum því í einlægni að allar konur beri til hans fallegar taugar.
 
Hann tók beiðni okkar vel og svaraði spurningum okkar um konuna eins og honum einum er lagið; af virðingu með fallegu orðalagi og einlægni. Við elskum einlægni...

Á allra vörum

Gróa Ásgeirsdóttir er ein af þremur forsvarskonum átaksins Á allra vörum.
 
Hún greindist með krabbamein í brjósti árið 2007. Ári síðar, þegar hún var nýbúin að klára meðferð, sköllótt og fín eins og hún segir sjálf, ákvað hún að nýta reynslu sína til hjálpar öðrum. Spegillinn tók konuna tali en þessa dagana er mikið um að vera hjá þeim stöllum og öðrum þeim sem að málunum koma í dag.
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur