logo

Undir sænginni

Gúmmífætur ef ég fæ það standandi

Ég breiði flauel yfir sumar senur, svo fallegar. Þær senur eru mínar og svo ekta. Flauelið mjúkt er ég strýk vanga mínum eftir því. Lygni aftur augunum og hugsa það alla leið.

Malar eins og köttur

Hún stígur undir bununa og sápar kroppinn. Strokurnar fullar eftirvæntingar og henni finnst hún falleg. Malar eins og köttur og hlakkar til líkamlegra samskipta. Þegar svo ber undir eru fötin aukaatriði; engin þörf á kynæsandi blúndum eða glitri. Bara segja það sem segja þarf með atferlinu og augunum og einfaldur hlýrabolur og pils bundið um mittið fá enga athygli. 

Svoleiðis símtal

Ég heyri í símanum gegnum svefninn sem var rétt að síga á mig. Fljót að hrifsa til mín tólið, því ég átti allt eins von á hringingu. Veit þú ert úti, klukkan er margt. Já, ég fylgist stundum með. Þegar þú horfir svona á mig. 

Með vægt bragð af rommi

27 desember 2011 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Hann teygir sig í jakkann minn sem liggur á barstólnum við hlið mér og leggur hann yfir herðar mínar, veiðir hárið upp úr að aftan og ég kem höndunum í ermarnar. Við leiðumst út og mér finnst ég ekki reikul í spori. Finn samt að ég hef engin tök á neinni dómgreind, enda kæri ég mig ekki um það. Að vera greind eða dæma.

Slétt skipti

10 desember 2011 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Ég væri sko til í að detta í deitin. Bara svona kitlandi skemmtileg sem enda á ýmsa vegu. Láta strjúka mér þar til ég mala. Hvort er skemmtilegra? Ástin eða lostinn?

Hiti í kolunum

Þegar maður býr á svona ísköldu landi eins og Íslandi, gerast heitar sögur oftast að sumri til. Þessi er ein af þeim sem þó má flokka undir veturinn...líka vegna þess að hún þolir illa dagsljósið. 

Augun tala

29 nóvember 2011 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Ég er að ganga frá möppunum. Dagur á enda og ég hlakka til að koma heim til mín. Sparka af mér skónum og slaka á. Ég finn að einhver er að fylgjast með mér og sný mér við.

Er það óþarfi?

23 nóvember 2011 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Hvað ef mig langar til að þekkja þig? Vita hvað þú hugsar ef...
 
Muntu segja mér hvað þér finnst, um eitt og annað? Mun það falla mér í geð? Verður aftur snúið ef ég tek sénsinn...og segi hæ, þetta er ég? Komum að tala.
 

Karlmenn eru tussur, farðu!

15 nóvember 2011 - Heiða Þórðar

Ég stóð við gluggann og horfði út.
 
Ég upplifði mig enn og aftur sem fanga. Fanga minna eigin hugsanna.
 
Greindi ekki liti lífsins; allt svart, hvítt eða grátt.
 

Grætur þú eftir fullnægingu?

12 nóvember 2011 - Heiða Þórðar

Ég á alveg hreint stórkostlegar vinkonur. Hæ stelpur! Hitti eina þeirra fyrir stuttu og við fórum á flug, eins og alltaf. Það eru engin takmörk sett fyrir því, hvað við getum blaðrað um. Bara gaman.

Kjóllinn allur um mitti mér

11 nóvember 2011 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Þegar ég tek af mér jakkann og legg hann á stól. Lít upp. Þá mæti ég andliti þínu. Ég þekki það betur en svona. Það veit það enginn. Þú hamast við að vera bara svona, láta sem ekkert sé. Sem ekkert hafi verið. Og ég brosi. Ég er hún, þessi sterka. Manstu?

Þröngar buxur

7 nóvember 2011 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Sérðu ekkert nema rass? Æ, þú ert krútt. Ég fíla rassa líka. Má ég sjá þinn? Snúðu þér við sem snöggvast. Þú hlærð bara. Ég meina, má kona ekki láta eins og þú? Bjáni geturðu verið.
 

Í sturtu

5 nóvember 2011 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Það er komið kvöld, ég er ein. Með þér í huganum. Og skrúfa frá sturtunni. Fer úr fötunum fyrir framan spegilinn, þykist vera þú. Að horfa á mig. Svo stíg ég undir bununa, bleyti hárið. Læt bununa dynja á andliti mínu. Strýk höndunum niður kroppinn. Yfir brjóstin, niður magann. Hugsa um þig.

Að missa kúlið

Ég bara verð að segja ykkur frá því hvernig það er að missa kúlið. Það fólk sem þekkir til mín veit að ég get verið svaka röff, töff, og með ískalt kúlið uppi við.
 

Ryk

17 október 2011 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Ég lauma hönd í aðra þar sem við fetum göngustíg í tunglbirtu. Loks ertu hér. Herra sjúklega freistandi. Komdu með mér, ég skal sýna þér trikk eða tvö. Ég banda frá mér grein á appelsínutré, hann er þröngur þessi stígur. Og ég þarf varla að útskýra hvað í ósköpunum við erum að gera á miðjum akri um nótt.
 

Erótík

15 október 2011 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Ég sagði, fólk á að lesa erótík og jafnvel skrifa hana líka. Hugsa um húðina alla og snertingu sem gerir hana óða. Hugsa um kossa sem kynda niður milli fóta. Jafnvel bara ímyndun sem setur allt í gang. Ef þú horfir. Og hugsar.

Þrá

Undarlegir dagar þessir dagar sem teygja sig inn í næturnar. Finn svo skrýtin lítil atriði sem einhvern veginn setja mig í klemmu. Mála mig út í horn. Það er gott og slæmt. Þægilega óþægilegt og kemur á óvart. Það ert þú. Og ég hugsa: Hvað er það? Sem strípar mig er ég reyni að berjast. Varnarlaus en með alla anga úti. Þversagnir á þversagnir ofan.

Hitt lífið

Ég er ein heima og það er laugardagskvöld. Ekkert sérstakt að gera svo sem en nenni ekki fyrir mitt litla líf að labba út á hitt lífið. Það kostar speglun og tómt vesen, og ég er ekki í stuði fyrir fínpússun. Svo mátulega þægilegt að halda sig á leggings nótum og víðum bol. Slétt sama þótt hárið hrynji ólögulegt úr klemmunni. Og sófinn er krúttlegur í horninu.
 

Með rassinn út í loftið

Ég er pínulítið þreytt í bakinu þegar ég snara pokanum af mér á brautarpallinn. Það eru nokkrar mínútur í mína lest. Áfangastaðurinn er stórborg í sex klukkustunda fjarlægð og ég er vel undirbúin; með hausinn fullan af hugmyndum um hugsanir, krotbók og tölvugarm sem dugar í ritvinnslu. Ekki mikið meir.

Cougar

24 september 2011 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Ég var í baði, rétt nýbúin að mýkja húðina með sjúklegu kremi sem ilmar af jarðarberjum. Og smokra mér í sloppinn. Ég nenni varla að blása hárið...en það þýðir úfin í fyrramálið, sko meira en annars. Skítt með það. Ég lifi.
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur