
Heiða Þórðar
Ritstjóri
Heiða Þórðar
Ég heiti Heiða og er Þórðardóttir. Ég er dóttir Tóta svarta. Og ég er svo miklu meira og en bara það. Ég bý í Reykjavík, elska Reykjavík. Velkomin í heimsókn, þiggðu hjá okkur kaffi. Og með því. Gjörðu svo vel.
Eina nóttina hringsnerist ég á miðju stofugólfi. Ég vaki, þegar aðrir sofa. Ég hafði nýlokið verkefni og hugsaði með mér: Hvað geri ég núna? Ég tók þetta alla leið:
Hvað finnst mér skemmtilegast að gera? Ég þurfti ekki að leita langt eða lengi svara: Skrifa.
Númer eitt, tvö og þrjú; skrifa.
Það hlýtur að vera draumur hvers og eins að hafa lifibrauð af áhugamáli sínu.
Í mínu tilfelli fljúga hugmyndirnar um eins og óð og ofvirk fluga. Einhverjar þeirra detta niður á blað. Aðrar fara í litla bók sem ég er alltaf með í veskinu mínu. Enn aðrar í gulllitaða bók sem ég geymi á náttborðinu. Alltof margar koma og fara eitthvað út í buskann.
Það er von mín, að því sem mestu máli skiptir hafi ég komið niður á blað og alla leið áleiðis til þín mín kæra/kæri.
Njóttu gleðinnar með okkur. Með þessari hugarsmíð er líf mitt fullkomnað. Mig langar að deila hluta af gleðinni, skoðunum mínum og pælingum með þér.
Komdu með okkur á „rúntinn“... hver veit hvar við endum. Ég og Steinunn Fjóla.
Þín einlæg, Heiða
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





