
Steinunn Fjóla Jónsdóttir
Ritstjóri
Steinunn Fjóla Jónsdóttir
Steina er íslenskukennari að mennt og þriggja barna móðir. Hún er búsett á Spáni og vinnur þar við ritstörf. Hennar fyrsta skáldsaga, Níní, kom út á Íslandi í október 2011. Og spegillinn er sköpunarverk hennar og Heiðu Þórðar.
Steina hefur unun af að skrifa; sumt frá hjartanu og annað sem kemur að utan. Með speglinum gefst tækifæri til fjölbreyttra skrifa og takmarkalausrar kátínu við tölvuna. Henni finnst skemmtilegt að vakna á morgnana og hún tímir varla að fara að sofa á kvöldin. Það sem laðar að rúminu er bókin sem hún er að lesa þá og þegar.
Það allra besta í heimi er að vera kona, með öllu sem því fylgir. Hún er komin til að vera...konan.
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





